Samskipti Hafnarfjarðarbæjar við lóðarhafa lítil síðustu 3 ár
Einn lóðarhafa í Hafnarfirði þar sem reisa átti Tækniskólann fékk tilboð sem hann féllst ekki á. Síðan voru samskipti lítil. Fyrrverandi bæjarstjóri fer undan í flæmingi.
Lóðareigandi í Hafnarfirði, Haraldur Reynir Jónsson, staðfestir við Heimildina að hann hafi átt í litlum samskiptum við bæinn undanfarin misseri í tengslum við lóðaruppkaup vegna Tækniskólans. Hann hafi fengið tilboð árið 2023 sem honum þótti ekki ásættanlegt en síðan hafi bærinn ekki komið með móttilboð. Hvorugur fyrrverandi bæjarstjóra Hafnarfjarðar hafa tjáð sig um misheppnuð lóðauppkaup í tengslum við Tækniskólann.
Endaði á upphafsreit
Fyrrnefndur Haraldur er oft kenndur við útgerðarfélagið Sjóla og átti eina af þremur lóðum sem bærinn vildi festa kaup á til þess að standa undir skuldbindingum sínum vegna uppbyggingar Tækniskólans í Hafnarfirði. Fyrrum meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar hundsaði ítrekaðar viðvaranir minnihlutans sem varaði margsinnis við hægagangi við að tryggja lóðirnar. Svo fór að Hafnarfjörður missti verkefnið úr höndum sér fimm árum eftir að það hófst.
Fyrrverandi oddviti Samfylkingarinnar, Guðmundur Árni Stefánsson, sem margbókaði viðvaranir tengdar málinu í bæjarstjórn síðustu fimm árin, sagði í viðtali við Heimildina um helgina …