Það hafa eflaust margir skoðun á því hvernig rétt sé að bera fram skonsur og nýleg færsla frá Meghan, hertogaynjunni af Sussex, hefur heldur betur hrært upp í þeirri umræðu. Hér ætlum við þó ekki að taka þátt í þeim orðaskiptum, heldur leyfa uppskriftinni að njóta sín. Niðurstaðan er einföld: Þetta eru virkilega góðar skonsur sem vert er að prófa.
Á samfélagsmiðlum deilir hertogaynjan reglulega fallegum augnablikum úr eldhúsinu, uppskriftum og litlum hugmyndum sem gera hversdaginn aðeins meira heillandi. Lífsstílsmerki hennar, As Ever, leit dagsins ljós 4. mars 2025 og vakti strax mikla athygli. Vörurnar seldust upp á skömmum tíma og merkið hefur síðan fest sig í sessi sem rómantískt og fágað þar sem matur, stemning og fegurð mætast.
Matur sem ástartungumál
Nafnið As Ever vísar til þess sem hefur ávallt verið til staðar og þeir sem hafa fylgst með henni í gegnum tíðina vita að ástríðan fyrir matargerð er engin nýlunda. Maturinn hefur lengi verið ástartungumál hennar; leið til að skapa hlýju, stemningu og tengingu.
Í vörulínu merkisins má meðal annars finna sultur, bökunarmix, appelsínublómahunang og fleiri fallega útfærðar sælkeravörur. Nýjast í línunni eru kerti sem falla vel að þessari mjúku og fáguðu heildarmynd.
Mjúkar, fallegar og ómótstæðilegar
Og svo eru það skonsurnar.
Þær eru mjúkar, ljósar og fallegar, með klassískum einfaldleika sem fær að njóta sín til fulls þegar þær eru bornar fram volgar með rjóma, sultu, hunangi og örlitlu blómaskrauti. Þetta er uppskrift sem sameinar hið hefðbundna og hið fágaða á einstaklega heillandi hátt og útkoman er svo góð að það skiptir í raun litlu máli hvað fer fyrst ofan á.
Fullkomnar með síðdegiskaffinu
Þetta eru skonsur sem eiga jafn vel heima á fallega dekkuðu síðdegisborði og við rólegt helgarkaffi heima í eldhúsi. Þær eru einfaldar, glæsilegar og alveg sérstaklega ljúffengar.
Svo góðar að það skiptir litlu máli hvað fer fyrst ofan á
Uppskrift að skonsum Meghan hertogaynju
- 250 g hveiti
- 60 g kalt smjör
- 40 g kókossykur eða venjulegur sykur
- 1 egg
- 160 g rjómi
- 12 g lyftiduft
- 1 klípa af salti
- 1 krukka af óþeyttum rjóma
- Jarðarberjasulta
- Appelsínublómahunang
- Blómaskraut
Aðferð
- Blandið saman hveiti, lyftidufti og salti í skál. Bætið köldu smjöri út í, skornu í litla teninga, og myljið saman við þurrefnin þar til blandan líkist grófri mylsnu.
- Þeytið egg og sykur saman þar til blandan verður létt og ljós. Hellið henni síðan út í deigið ásamt rjómanum.
- Blandið þar til slétt og mjúkt deig hefur myndast. Stráið smá hveiti á borðflötinn og hnoðið deigið til. Fletjið það svo út þar til það er um 4 sentímetrar á þykkt.
- Skerið út skonsur með kökuskera eða glasi, penslið toppinn með rjóma og bakið við 170 °C í um 14 mínútur.
- Berið fram volgar með þeyttum rjóma, jarðarberjasultu, appelsínublómahunangi og fallegu blómaskrauti.