Þetta er meðal þess sem kemur fram í dagbók lögreglunnar eftir síðasta tímabil en klukkan fimm í dag var enginn vistaður í fangageymslu. Í hverfi 101 var ökumaður handtekinn fyrir akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna.Tveir ökumenn til viðbótar komust í kast við lögin en annar þeirra var kærður fyrir að aka án gildra réttinda í hverfi 220. Sá blés undir mörkum í áfengismæli. Hinn var handtekinn fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna í hverfi 210.Í Breiðholti gerði einn ökumaður sér lítið fyrir og ók út götu þar sem hámarkshraðinn er 30 km/klst á 72 km/klst eða rúmlega tvöföldum hámarkshraða. Þá var annar ökumaður kærður fyrir að keyra sviptur ökuréttindum á Kársnesinu í Kópavogi.
Veistu meira um fjársvikin á hótelinu eða önnur mál úr dagbókinni? Sendu okkur fréttaskot hér eða tölvupóst á ritstjorn@visir.is.
Veistu meira um fjársvikin á hótelinu eða önnur mál úr dagbókinni? Sendu okkur fréttaskot hér eða tölvupóst á ritstjorn@visir.is.