Stjórnvöld í Svíþjóð vara við skorti á flugvélaeldsneyti vegna raskana á olíuflutningum í Mið-Austurlöndum. Orkumálaráðherra hvetur Svía til að hafa forsjá ætli þeir að ferðast. Forstjóri Sænsku orkustofnunarinnar segir litlar líkur á því að skammta þurfi eldsneyti.
„Við viljum gefa snemmbúna viðvörun um að það er áhætta á skorti á flugvélaeldsneyti. Þetta byggir á mati Sænsku orkustofnunarinnar,“ sagði Ebba Busch, orkumálaráðherra Svíþjóðar, á blaðamannafundi í dag.
Þótt Bandaríkin og Íran kæmust að varanlegu friðarsamkomulagi á morgun tæki það einhvern tíma áður en olíu- og gasbirgðir kæmust í samt lag, að sögn Busch.
Enn sem komið er er ekki skortur á flugvélaeldsneyti í Evrópusambandinu en áhyggjur fara vaxandi þar sem um 20 prósent af eldsneytinu sem sambandið notar kemur um Hormússund.
Busch hvatti Svía til að hafa forsjá ætli þeir að bóka ferðalag erlendis, ef ferðinni skyldi verða aflýst eða tafir verða. „Fylgist með því hvað ferðatryggingin nær yfir, fylgist með skilmálum og hafið forsjá í ferðalögum.“
Litlar líkur á skömmtun
Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, og Caroline Asserup hjá Sænsku orkustofnuninni voru einnig á blaðamannafundinum. Kristersson sagði olíuskortinn ekki hafa eins mikil áhrif á Svía eins og margar aðrar þjóðir þar sem raforkuframleiðsla byggist að mestu leyti á kjarnorku, vatnsafli og endurnýjanlegri orku.
„Á heimsvísu er ástandið alvarlegt, ekki síst í Asíu. Það hefur minni áhrif á Evrópu og mun minni áhrif á Svíþjóð en önnur Evrópulönd, eins og staðan er núna,“ sagði Kristersson.
Áhrifin gætu þó orðið meiri dragist stríðið á langinn.
Asserup sagði að hvorki væri skortur á bensíni né dísilolíu. „Svíþjóð og hin Norðurlöndin hafa töluverða getu til hreinsa olíu, þar sem við notum að mestu leyti olíu úr Norðursjó. Mikil eftirspurn er eftir þeirri olíu núna og þess vegna hefur verðið hækkað. En framboðið hefur ekki áhrif á ástandið í Mið-Austurlöndum.“
Hún segir litlar líkur á því að bensín og dísilolía verði skömmtuð en staðan sé hins vegar önnur þegar kemur að flugvélaeldsneyti. „Í versta falli, til lengri tíma litið, gætum við þurft að skoða að skammta það. En það er langt þangað til.“