Brotist var inn í minkabúið Dalsbú og miklar skemmdir unnar á húsunum, nokkur þúsund minkar sluppu og heyrast nú skothvellir í Mosfellsdal þar sem verið er reyna að koma í veg fyrir stórskaða. Enginn samtök hafa lýst yfir ábyrgð á verkinu og segir Ásgeir Pétursson, eigandi Dalsbús, í samtali við RÚV að engin skilaboð hafi verið skilin eftir. Mosfellsbær og samtökin Dýrfinna hafa hvatt íbúa til að halda gæludýrum sínum inni á meðan staðan er metin.
Sveinn Óskar kallar eftir skýringum: „Á fjölskylda, sem nú þegar hefur orðið fyrir verulegu tjóni, að bera ótakmarkaðan kostnað?“