Bennet Wiegert, þjálfari Þýskalandsmeistara Magdeburg í handbolta, tjáði sig um framtíð landsliðsskyttunnar Elvars Arnars Jónssonar á dögunum í samtali við þýska miðillinn Bild.
Elvar Örn, sem er 28 ára gamall, er samningsbundinn Magdeburg en hann gekk til liðs við þýska félagið frá Melsungen síðasta sumar.
Selfyssingurinn hefur verið sterklega orðaður við Rhein-Neckar Löwen undanfarnar vikur en hann er sagður vilja spila meiri sóknarleik en hann hefur fengið að gera hjá Magdeburg.
Aldrei rætt um spilatímann
„Í öllum þeim samtölum sem ég hef átt við Elvar höfum við aldrei rætt neitt sérstaklega um spilatímann hans,“ sagði Wiegert í samtali við Bild.
„Hann er lykilmaður hjá okkur en vill spila meira í sókninn. Við þurfum að bíða og sjá hvort við getum fungið lausn á því. Hann hefur verið gríðarlega mikilvægur í varnarleik okkar á tímabilinu en ég skil vel að hann vilji spila meira í sókninni því hann er frábær sóknarmaður.
Í afreksíþróttum þá er það bara þannig að leikmenn sjá hlutina ekki alltaf sömu augum og þjálfarar,“ bætti þýski þjálfarinn við í samtali við Bild.