Mikið líf er á Borgarfirði eystra þessa dagana enda hefur veðrið leikið við heimamenn og jafnframt ferðamenn sem lagt hafa land undir fót. Hótel eru full, nóg er að gera á tjaldsvæðinu og hundruð farþega úr skemmtiferðaskipum heimsóttu bæinn í dag.
„Það er mjög góð stemning. Það er nóg að gera á tjaldsvæðinu og fullt af fólki hér, bæði erlendir ferðamenn og töluvert af Íslendingum. Það er sól og blíða, algjört kajakveður og mikið af fólki á ferðinni,“ segir Tinna Jóhanna Magnusson, kennari og meðeigandi Fjarðarborgar, í samtali við mbl.is.
Hún segir hótelin á svæðinu fullbókuð og mannmergð á tjaldsvæðinu. Þrátt fyrir fólksfjöldan hafi umgengni ferðamanna verið afar góð.
„Það er ekkert út á hana að setja. Fólk sækir mikið út í Hólmann að skoða lundann og það gengur allt mjög vel,“ segir Tinna.
Hundruð komu í kaffi og kleinur
Um 300 til 400 farþegar úr skemmtiferðaskipum sem lögðu við bryggju á Seyðisfirði komu með rútum til Borgarfjarðar í dag. Hópurinn heimsótti meðal annars Fjarðarborg þar sem boðið var upp á kaffi, kleinur og spjall.
„Það er rosalegt rennirí en stemningin er samt notaleg. Það er enginn æsingur í fólki. Það er svo hlýtt að allir eru bara í rólegheitunum, sitja úti á pöllum eða í lautarkaffi,“ segir hún.
Framkvæmdir standa jafnframt yfir við Fjarðarborg þar sem unnið er að því að steypa stétt. Tinna segir því talsverð umsvif í bænum, þótt yfirbragðið sé afslappað.
Bræðslugestir koma sífellt fyrr
Enn meira líf færist yfir Borgarfjörð í næstu viku þegar tónlistarhátíðin Bræðslan hefst. Uppselt er á hátíðina, líkt og undanfarin ár, og segir Tinna miðana hafa selst upp á skömmum tíma.
Hún telur líklegt að fyrstu gestirnir séu þegar farnir að koma til bæjarins, sérstaklega fólk sem eigi rætur á svæðinu og dvelji í fjölskylduhúsum.
„Það gæti vel verið að einhverjir séu þegar komnir á tjaldsvæðið til að vera yfir Bræðsluna. Þróunin undanfarin ár hefur verið sú að fólk kemur fyrr og fyrr í Bræðsluvikunni. Á miðvikudeginum er tjaldsvæðið til að mynda oft orðið fullt,“ segir hún.
„Okkur finnst við eiga þetta inni“
Tinna segir júnímánuð ekki hafa verið sérstaklega góðan veðurfarslega en júlí hafi bætt heimamönnum það ríkulega upp.
„Við erum rosalega glöð að sumarið sé loksins komið. Júlí hefur verið alveg yndislegur og okkur finnst við eiga þetta inni núna,“ segir hún.
Þrátt fyrir rysjótt veður í byrjun sumars hafi verið nóg um að vera á Borgarfirði. Dyrfjallahlaupið fór meðal annars fram í byrjun júlí og dró fjölda fólks á svæðið.
„Ef það er ekkert að gera þá finnum við Borgfirðingar okkur einfaldlega eitthvað að gera. Það er bara þannig,“ segir Tinna létt í lund að lokum.




