Á dögunum undirrituðu Bóksala stúdenta og Viska stéttarfélag samstarfssamning sem felur í sér að Viska niðurgreiðir námsbækur um 25% fyrir alla háskólanema sem eru skráðir í Visku stúdent. Viska stúdent er gjaldfrjáls þjónustuleið fyrir alla háskólanema á aldrinum 18 til 35 ára.
Styðja við bakið á háskólanemum með nýjum leiðum