Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands ávarpar í dag neðri málstofu breska þingsins vegna skipunar Peters Mandelsons í embætti sendiherra Bretlands í Bandaríkjunum. Í síðustu viku var greint frá því að Mandelson hefði ekki staðist öryggisvottun eftir að Starmer skipaði hann í embættið en utanríkismálaskrifstofan hefði eftir sem áður veitt honum vottunina. Starmer segist ekki hafa vitað af þessu en nú eru komnar frekari upplýsingar sem koma honum illa – og nóg hefur verið af þeim hingað til.
Í skjölum sem stjórnvöld hafa birt kemur fram að Simon Case, einn af embættismönnum ríkisstjórnarinnar, ráðlagði Starmer að skipa Mandelson ekki formlega fyrr en hann hefði lokið öryggisvottunarferlinu. Í bréfi sem Case sendi Starmer 11. nóvember 2024 um skipunarferlið gaf hann honum þessi ráð ef skipunin yrði pólitísk: „Þú ættir að gefa okkur upp nafn þess sem þú vilt skipa og við gerum áætlun um að fá nauðsynlegar öryggisheimildir og kanna hugsanlega hagsmunaárekstra eða annað sem þú ættir að vera meðvitaður um áður en þú staðfestir val þitt.“
Tilkynnt var um skipun Mandelsons rúmum mánuði síðar, 20. desember 2024. Öryggisvottunin var veitt eftir það.
Mandelson var rekinn úr embætti í haust eftir að upp komst að samband hans við kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein var mun nánara en áður hafði verið talið. Breskir fjölmiðlar leiða líkum að því að Starmer muni fyrir þinginu í dag segjast óafvitandi hafa gefið rangar upplýsingar þar sem hann hafi ekki vitað að Mandelson hefði ekki staðist öryggisvottun.
Blaðamenn sátu fyrir Mandelson þar sem hann var úti að ganga með hundinn sinn í morgun. Hann tjáði sig ekki við fjölmiðla.