Starfsfólk Matvælastofnunar hefur orðið fyrir óvenjulega mikilli áreitni og hótunum að undanförnu. Yfirdýralæknir segir áreitnina hafa gengið svo langt að sumu starfsfólkinu finnist það ekki öruggt heima hjá sér og óttist um börn sín.
Fólk orðið fyrir beinum árásum
Færst hefur í aukana að starfsfólk Matvælastofnunar verði fyrir áreitni við eftirlitsstörf og jafnvel ærumeiðingum á samfélagsmiðlum. Þóra Jóhanna Jónasdóttir yfirdýralæknir segir þetta tengjast afskiptum stofnunarinnar af dýrahaldi og þvingunarúrræðum - þar sem talið er að brotið hafi verið á velferð dýra.
„Fólk hefur orðið fyrir beinum árásum, því hefur verið hrint, það hefur verið barið, slegið. En oft er jafnvel erfiðara að fá dulbúnar ógnanir eins og „Ég veit hvar þú býrð.“. Það veldur kvíða og ótta og fólk getur ekki upplifað sig öruggt heima hjá sér. Og það er mjög óþægileg tilfinning,“ segir Þóra.
Þóra segir að margir óttist um fjölskyldu sína og börn og hafi því sett upp eftirlitskerfi heima hjá sér. Einhverjir hafa sagt upp vegna áreitninnar. Stofnunin hafi til skoðunar að útvega starfsfólki öryggishnapp.
„Það er aldrei lausn að ráðast á starfsfólk sem er bara að vinna vinnuna sína.“
Lögregla kölluð til í ógnandi aðstæðum
Þóra segir að þeir sem ganga hvað lengst í slíkum hótunum séu ekki margir en hegðunin sé endurtekin. Eftirlitsmenn hafi kallað lögreglu til í ógnandi aðstæðum.
„Við höfum kært til lögreglu og þá á eftir að sjá hvort það fari áfram. Við vitum auðvitað að þessi mál eru erfið og það getur verið áskorun að fara með þau lengra.“
Þóra bendir á að ákvarðanir um að fjarlægja dýr af heimilum séu ekki teknar af einstaklingum heldur af teymi starfsfólks Matvælastofnunar – og aldrei af léttúð eða að ástæðulausu.
„Þetta er aldrei vænleg leið til árangurs að ráðast á eftirlitsfólkið. Það eru aðrar leiðir. Þeir sem telja á sér brotið eða eru ósammála ákvörðun Matvælastofnunar hafa skýr úrræði,“ segir Þóra.
„Það er hægt að leita til æðra stjórnvalds eins og ráðuneytis og kæra ákvörðun Matvælastofnunar. Það er hægt að bera mál undir umboðsmann og fara með mál fyrir dómstóla. En það er aldrei lausn að ráðast á starfsfólk sem er bara að vinna vinnuna sína.“