Stærsti skjálftinn í jarðskjálftahrinunni sem hófst í Bárðarbungu í gærkvöldi mældist 4,8 að stærð. Frá þessu segir í tilkynningu frá Náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands.
Um 400 skjálftar hafa mælst síðan hrinan hófst. Skjalftavirknin var mest til klukkan 3 í nótt en síðan hefur dregið úr henni. Þó er enn of fljótt að segja til um hvort hrinan sé að fjara út.
Síðast varð sambærileg jarðskjálftahrina í Bárðarbunguöskjunni í janúar á síðasta ári.
Skömmu fyrir klukkan eitt í nótt hækkaði Veðurstofan fluglitakóða upp í gulan. Það þýðir að eldstöð sýni merki um virkni umfram venjulegt ástand.
Vegna óvissu um framvindu atburðarins verður fluglitakóðinn áfram gulur.
Enginn gosórói mældist þó á svæðinu í nótt.
Aukin skjálftavirkni síðustu tvö ár
Bárðarbunga er ein öflugasta eldstöð landsins og minnir reglulega á sig með jarðskjálftum. Síðastliðin tvö ár hefur skjálftavirkni aukist nokkuð og mælingar sýna að öskjubotninn hefur lyfst um tugi metra frá því að gosinu í Holuhrauni lauk fyrir áratug en það var síðasta eldgos í eldstöðvakerfi Bárðarbungu. Það er enn stærsta hraungos frá lokum Skaftárelda.