Rannsóknir á hanta-veirunni sem herjar á farþega og áhöfn skemmtiferðaskipsins Hondius hafa leitt í ljós að smitið hefur borist milli manna. Þessu greindi Aaron Motsoaledi, heilbrigðisráðherra Suður-Afríku, frá í dag.
Hann sagði suðurafrískri þingnefnd að bráðabirgðarannsóknir sýndu að hanta-veiran sem greindist væri af Andes-afbrigði. „Og það vill svo til að það er eina afbrigðið af 38 sem þekkt er að valdi smiti frá einni manneskju til annarrar.“
Spænsk yfirvöld hafa heimilað skipinu að koma til hafnar á Kanaríeyjum þar sem heilsa farþega og áhafnar verður skoðuð áður en fólkið heldur lengra.