Greinendur gera ráð fyrir að Seðlabanki Evrópu hækki stýrivexti sína í vikunni í fyrsta sinn í tvö og hálft ár. Það er ekki síst vegna áhrifa stríðsins í Mið-Austurlöndum á alþjóðlegan orkumarkað.
Verðbólga á evrusvæðinu jókst í 3,2% í maí sem er nokkuð yfir 2% markmiði bankans.
Greinendur gera því ráð fyrir að bankaráð hækki vexti úr 2% í 2,25% á næsta fundi sínum á fimmtudag. Það yrði fyrsta hækkun bankans síðan í september 2023. Þá stóðu vextirnir í 4%.