Spænska lögreglan greindi í dag frá því að hún hefði handtekið Jonathan Andic, son Isaks Andics sem stofnaði tískuverslanarisann Mango.
Andic eldri lést í fjallgöngu í desember 2024. Sonur hans var þá einn með honum á ferð.
Upphaflega var talið að Andic hefði látist af slysförum en seinna vaknaði grunur um að sonurinn hefði myrt föður sinn. Það var ekki síst vegna mótsagnakennds framburðar hans í skýrslutökum. Hann hafði upphaflega réttarstöðu vitnis en síðar sakbornings.