Sonur Díönu var skilinn eftir í skólarútunni – Er með sjaldgæfan sjúkdóm sem getur verið hættulegur - DV

Sonur Díönu var skilinn eftir í skólarútunni – Er með sjaldgæfan sjúkdóm sem getur verið hættulegur - DV

Sonur Díönu var skilinn eftir í skólarútunni – Er með sjaldgæfan sjúkdóm sem getur verið hættulegur - DV

Drómasýki er taugasjúkdómur sem veldur því að sjúklingur getur yfirleitt ekki verið vakandi né sofandi í meira en nokkrar klukkustundir í einu. Einkennin eru mismunandi en hjá sumum lýsa þau sér í því að viðkomandi fellur fyrirvaralaust í svefn, við hvaða aðstæður sem er.

Samkvæmt heimasíðu Lokbrár, félags fólks með drómasýki, eru að meðaltali um 25-50 af hverjum 100 þúsund með þennan sjúkdóm. Algengt er að hann komi fram á aldrinum 14-18 ára en sjaldgæft er að börn undir 10 ára aldri greinist með sjúkdóminn. Það er þó tilfellið með son Díönu Rúnar Rúnarsdóttur, þriggja barna einstæðrar móður í Grafarvogi. Sonur hennar, sem er níu ára, greindist með sjúkdóminn fyrir þremur árum, þegar hann var sex ára. Hann fellur fyrirvaralaust í svefn að minnsta kosti einu sinni á dag. Getur það gerst við mjög óheppilegar aðstæður, jafnvel hættulegar, en sonur Díönu hefur sofnað í skólabílnum, á bekk fyrir utan skólann sinn á köldum morgni og oftar en einu sinni í sundi.

„Að eiga barn með drómasýki, sem getur sofnað hvar og hvenær sem er, tekur virkilega á, en sem betur fer þurfa ekki margir foreldrar að kynnast þessum sjúkdómi því mjög fá börn undir 10 ára aldri greinast með hann. Sonur minn er með þeim yngstu sem greinst hafa með sjúkdóminn hér á landi en það tók mig heilt ár að fá einhvern í heilbrigðiskerfinu til að hlusta á mig svo hann fengi greiningu,“ segir Díana í viðtali við DV.

Díana segir að skortur á aðgát gagnvart ástandi sonar hennar í skólanum hans hafi valdið vanda og áhyggjum. Þar þyki það mjög krúttlegt að hann sofni í tíma og ótíma en því miður sé málið miklu alvarlegra en svo:

„Það eru margir sem átta sig ekki á því hversu hættulegur þessi sjúkdómur getur verið, þá meina ég vegna þess að hann getur sofnað hvar sem er. Kerfið tekur nánast ekkert við sér og oft finnst mér nærumhverfið ekki vita og skilja hvað er í gangi. Ég er samt heppin með að ég fæ góðan stuðning frá minni fjölskyldu en annar stuðningur hefur varla verið fyrir hendi fram að þessu,“ segir Díana, sem nýlega hefur komist í kynni við samtökin Lokbrá og vonast til að finna stuðning og fræðslu þar.

Sjúkdómurinn hefur einangrað soninn

Fyrir utan að falla í svefn í tíma og ótíma hefur sonur Díönu einnig fengið svokölluð svefnflog sem lýsa sér í því að hann festist í svefnástandi, veit af sér en getur sig ekki hreyft sig. Þetta hefur þó sem betur fer hent sjaldan.

Díana segir að sonur hennar sé almennt við góða heilsu þrátt fyrir sjúkdóminn en hann hafi einangrast nokkuð félagslega vegna hans. „Hann breyttist mikið við að fá þennan sjúkdóm og vill aðallega vera út af fyrir sig. Hann er róleg týpa en getur orðið tæpur í skapi ef hann þreytist mikið.“

Hún segir að sjúkdómurinn muni ekki eldast af honum en þegar hann verður fullorðinn geti hann tekið lyf við honum sem eru of sterk fyrir hann núna á meðan hann er svona ungur, lyfin geti til dæmis valdið hjartsláttartruflunum.

Hún segir einnig aðspurð að sonur hennar virðist ekki ósáttur við hlutskipti sitt, að vera með þennan sjúkdóm. „Hann virðist taka þessu bara ágætlega.“

Hún segir að sjúkdómurinn hafi ekki skaðað heilsu hans að öðru leyti. „Nei, þetta hefur ekki skaðað heilsuna hans, en það er frekar að umhverfið í kringum hann geti verið hættulegt,“ segir hún og fer í gegnum atvik þar sem hún telur að mjög hafi skort á árvekni gagnvart ástandi hans í skólanum.

„Það er enginn stuðningur í skólanum, enn sem komið er,“ segir hún. „Hann hefur sofnað á leiðinni í skólann á bekk sem er neðst í brekkunni við skólann. Hann mætir kl. 9 í skólann samkvæmt læknisráði. En það var ekki hringt í mig fyrr en kl. 9:40 með athugasemd um að hann væri ekki mættur. Ég fann hann sofandi á bekknum, ískaldan og örmagna. Það er rétt að hafa í huga að ónæmiskerfi hjá fólki með drómasýki er lélegt, enda sækja pestir mjög í hann. Einu sinni gleymdist hann sofandi inni í stofu þegar hann átti að fara í sund. Auk þess hefur hann sofnað þrisvar í sundi.“

Fyrir um mánuði síðan fékk Díana fund með starfsfólki skólans vegna sonar síns, fund sem hún hafði kallað eftir mjög lengi. „Þar fór ég vel yfir hvað þyrfti að gera til að styðja hann í námi og hvernig þyrfti að fylgjast með honum, sérstaklega í sundi. Mér var lofað stuðningi og tiltekin kona átti að fylgja honum í rútuna, fylgjast með honum í sundi og fylgja honum til baka.“

Þetta leit því vel út og Díana var vongóð eftir fundinn en stóra áfallið reið svo yfir fimmtudaginn 23. apríl. Síðasti tíminn á stundatöflunni var skólasund og átti rútan að vera komin til baka frá sundlauginni með börnin kl. 14:20.

Skilaði sér ekki til baka með skólarútunni

„Ég fer inn í skólann kl. 14:25 og sé að úlpan hans og taskan eru þar ennþá en ekki skórnir hans. Ég sé líka að allar aðrar flíkur eru farnar heim með börnunum. Ég fékk hnút í magann en hélt ró minni og gekk um skólann. Ég fann kennarann hans og spyr hana hvort rútan sé komin. Hún vissi ekkert um það og fór að hringja út um allt, loks hringdi hún í konuna sem átti að fylgja honum í og úr sundi. Sú kona segir að rútan sé löngu komin og hún hafi séð hann hlaupa inn. Á þessu augnabliki fann ég fyrir miklum létti og hugsaði með mér að barnið mitt hefði kíkt í frístund. En 45 mínútum seinna sá ég hann grátandi og þreyttan í fanginu á kennaranum sínum. Þá kom sannleikurinn í ljós: Hann fór aldrei út úr rútunni, hann sofnaði í henni og var skilinn eftir. Sem betur fer vaknaði hann áður en bílstjórinn skilaði rútunni af sér. Ég tek utan um barnið mitt og hann bara brotnar saman, ég hafði upp á bæði konunni sem átti að sjá um hann og aðstoðarskólastjóranum og var auðvitað reið og sár við þær, eiginlega hálfbrjáluð. Þær sögðu að það eina sem þær gætu gert væri að biðjast afsökunar en nú væru þær búnar að sjá að þetta getur víst gerst. Halló! Í alvöru! Ég var búin að vara mörgum sinnum við nákvæmlega þessu!“

Daginn eftir að Díana ræddi við DV átti hún boðaðan fund í skólanum um málefni sonar hennar. Hún vonar að sá fundur leiði til góðs en segist vera orðin vonlítil um úrbætur. „Ég hef verið ósátt við skólann hans mjög lengi.“ Hún segist hafa velt fyrir sér að skipta um skóla en drengurinn hennar vilji það ekki:

„Hann vill ekki fara vegna þess að krakkarnir í skólanum þekkja hann og vita um ástandið. Hann segist ekki vilja þurfa að byrja upp á nýtt, fara í skóla þar sem enginn veit að hann er með þennan sjúkdóm.“

Aðspurð segir Díana að börnin í skólanum komi vel fram við hann og séu góð við hann en hann hafi samt ekki eignast nána vini í skólanum og hann leiki sér ekki við önnur börn eftir skóla. Hann fari auk þess ekki í afmæli og sé það ýmist vegna þess að honum sé ekki boðið eða hann fari ekki þó að honum sé boðið. Sjúkdómurinn drómasýki virðist hafa einangrað þennan litla dreng að einhverju marki.

DV spurði Díönu hvort hún vildi koma einhverju sérstöku á framfæri um þennan sjúkdóm við lesendur DV. Hún segist vilja hvetja fólk til að leita sér upplýsinga um sjúkdóminn, sérstaklega ef einhver í umhverfinu er með drómasýki. Mikilvægt sé að hafa í huga að það er ekki bara „krúttlegt“ að fólki skuli falla í svefn upp úr þurru, það geti haft hættu í för með sér. Börnum með drómasýki þurfi að sýna sérstaka aðgát og eftirlit eins og margoft hefur sannast varðandi son hennar.

Upplýsingar um drómasýki er að finna hér.

#díönu #eftir #skilinn #sonur #var


Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/frettir/2026/5/9/sonur-dionu-var-skilinn-eftir-skolarutunni-er-med-sjaldgaefan-sjukdom-sem-getur-verid-haettulegur/

📰 Aðrar fréttir

Allir sem lentu í slysinu á Jökuldal eru erlendir ríkisborgarar
📅 03.10.2026 👁️ 0
Allir sem lentu í slysinu á Jökuldal eru erlendir ríkisborgarar
Lögreglan á Austurlandi hefur sent frá sér nýja tilkynningu vegna alvarlegs umferðarslyss sem varð í dag á Jökuldal við Háreksstaðakvísl. Í slysinu le...
ASÍ styður áform ráðherra: Au-pair kerfið leið til að fá ódýrt vinnuafl inn á íslenskt heimili
📅 03.10.2026 👁️ 1
ASÍ styður áform ráðherra: Au-pair kerfið leið til að fá ódýrt vinnuafl inn á íslenskt heimili
Alþýðusamband Íslands styður áform dómsmálaráðherra um að veita fólki utan EES ekki dvalarleyfi til að koma hingað til lands sem au-pair. Sá hluti fru...
Allir í slysi á Austurlandi erlendir ríkisborgarar
📅 03.10.2026 👁️ 1
Allir í slysi á Austurlandi erlendir ríkisborgarar
Aðgerðum lögreglunnar á Austurlandi á Háreksstaðaleið á þjóðvegi 1 á Austurlandi er lokið. Hópslysaáætlun var virkjuð rétt fyrir hádegi í dag eftir fj...
Psilocybin dró úr merkjum um heilaskaða eftir endurtekin höfuðhögg
📅 03.10.2026 👁️ 3
Psilocybin dró úr merkjum um heilaskaða eftir endurtekin höfuðhögg
Ný ritrýnd rannsókn á rottum sýnir minni heilabjúg, minna magn óeðlilegs tau-próteins og breytingar á tengingum heilans eftir gjöf psilocybins. Vísind...
Banna áfengissölu í Kujalleq í Grænlandi
📅 03.10.2026 👁️ 3
Banna áfengissölu í Kujalleq í Grænlandi
Frá og með gærdeginum er bannað að selja og framreiða áfengi í sveitarfélaginu Kujalleq á Grænlandi. Heimastjórn Grænlands barst beiðni frá sveitarstj...
La Gradiva hlaut Gullna lundann - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 3
La Gradiva hlaut Gullna lundann - Vísir
Stiklu úr La Gradiva má sjá hér að neðan. Í fréttatilkynningu frá hátíðinni er greint frá verðlaunahöfum hátíðarinnar en alls voru veitt sex verðlaun ...
Fyrrverandi forsætisráðherra Rússlands segir Pútín ekki þora að viðurkenna að stríðið hafi verið mistök
📅 03.10.2026 👁️ 3
Fyrrverandi forsætisráðherra Rússlands segir Pútín ekki þora að viðurkenna að stríðið hafi verið mistök
Mikhail Kasyanov, fyrrverandi forsætisráðherra Rússlands, segir Vladimír Pútín Rússlandsforseta ekki reiðubúinn til að semja um stríðslok í Úkraínu. H...
Segja raunverulegan rannsóknarlögreglumann minna mjög á Ólaf Darra í Ófærð
📅 03.10.2026 👁️ 4
Segja raunverulegan rannsóknarlögreglumann minna mjög á Ólaf Darra í Ófærð
Tveir umsjónarmenn eins vinsælasta fréttaskýringarþáttar í heimi um sönn sakamál líkja rannsóknarlögreglumanni sem leysti morðmál, þar sem maður var m...
Hjarnskaflinn í Gunnlaugsskarði horfinn – en sagan situr eftir
📅 03.10.2026 👁️ 4
Hjarnskaflinn í Gunnlaugsskarði horfinn – en sagan situr eftir
Hjarnskaflinn í Gunnlaugsskarði horfinn – en sagan situr eftir Hvarf lít­ils hjarnskafls í Esj­unni er smá­vægi­leg­ur at­burð­ur í sam­an­burði við h...
Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 4
Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda - Vísir
New York Times greinir frá því að flugmálayfirvöld í Bandaríkjunum hafi upplýst strandgæsluna um að samskipti við flugvélina hefðu rofnað um klukkan s...
Segir af sér eftir misheppnaða aftöku
📅 03.10.2026 👁️ 4
Segir af sér eftir misheppnaða aftöku
Frank Strada, fangelsismálastjóri í Tennessee í Bandaríkjunum, hefur sagt af sér. Það gerir hann í kjölfar þess að aftaka Christu Pike mistókst á miðv...
Mun mögulega hefja sérstaka athugun á málshraða atvinnuvegaráðuneytisins vegna ítrekaðra kvartana
📅 03.10.2026 👁️ 4
Mun mögulega hefja sérstaka athugun á málshraða atvinnuvegaráðuneytisins vegna ítrekaðra kvartana
Umboðsmaður Alþingis hefur upplýst atvinnuvegaráðuneytið um að til skoðunar sé að embættið taki upp frumkvæðisathugun vegna ítrekaðra kvartana yfir þe...
Hrekktu pabba Fannars í söfnunarþætti Reykjalundar
📅 03.10.2026 👁️ 4
Hrekktu pabba Fannars í söfnunarþætti Reykjalundar
Gunna Dís og Fannar Sveinsson, sem stýrðu skemmtidagskrá í söfnunarþætti fyrir endurbætur á Reykjalundi slógu á létta strengi í viðtali við Svein Guðm...
Man shot dead in East Acton as people gather for memorial service
📅 03.10.2026 👁️ 3
Man shot dead in East Acton as people gather for memorial service
The 40-year-old died at the scene in west London from a gunshot wound, the Met Police said.
Tennessee prison chief to resign after Christa Pike's failed execution
📅 03.10.2026 👁️ 4
Tennessee prison chief to resign after Christa Pike's failed execution
Pike survived two lethal injections on Wednesday and is currently in critical condition in hospital.
Haustbingó Blökastsins í beinni - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 4
Haustbingó Blökastsins í beinni - Vísir
Þremenningarnir Auðunn Blöndal, Egill Einarsson og Steindi Jr. hafa gert það að árlegri hefð að halda bingó á haustin og í ár verður engin breyting á....
Allir eru að tala um gervigreind en fáir greiða fyrir notkun hennar
📅 03.10.2026 👁️ 4
Allir eru að tala um gervigreind en fáir greiða fyrir notkun hennar
Aðeins um 2% bandarískra heimila greiddu fyrir gervigreindarþjónustu í apríl síðastliðnum, samkvæmt nýrri samantekt fjárfestingarfélagsins Andreessen ...
RÚV harðlega gagnrýnt fyrir myndbirtingu frá slysstaðnum á Jökuldal - „Þetta er bara ekki í lagi„
📅 03.10.2026 👁️ 4
RÚV harðlega gagnrýnt fyrir myndbirtingu frá slysstaðnum á Jökuldal - „Þetta er bara ekki í lagi„
Fréttastofa RÚV hlýtur töluverða gagnrýni á Facebook-síðu sinni fyrir að birta mynd frá Jökuldal þar sem alvarlegt umferðarslys átti sér stað fyrr í d...
Þörf á að styrkja endurhæfingu barna verulega
📅 03.10.2026 👁️ 4
Þörf á að styrkja endurhæfingu barna verulega
Þörf á að styrkja endurhæfingu barna verulega Alma Möller heil­brigð­is­ráð­herra hef­ur rætt við Ingu Sæ­land fé­lags­mála­ráð­herra um óljós mörk á ...
„Okkur finnst við vera undan­skilin“ - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 4
„Okkur finnst við vera undan­skilin“ - Vísir
Samkvæmt greiningu sem sambandið fékk hagfræðing frá Context til að gera eru tekjur ríkissjóðs sem rekja má til Austurlands 54,2 milljarðar á ári en ú...
Þúsundir manna mót­mæla í 50 borgum - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 4
Þúsundir manna mót­mæla í 50 borgum - Vísir
Fréttastofa Breska ríkisútvarpsins greinir frá. Mótmælendur kalla eftir betri löggjöf fyrir leigjendur en tillögur ríkisstjórnarinnar gegn húsnæðiskre...
Gul viðvörun vegna skriðuhættu á Vestfjörðum
📅 03.10.2026 👁️ 4
Gul viðvörun vegna skriðuhættu á Vestfjörðum
Gul viðvörun er í gildi vegna skriðuhættu á norðanverðum Vestfjörðum. Á vef Veðurstofu Íslands segir að síðustu dagar hafi verið mjög úrkomusamir víða...
Telur að það mætti breyta vinnumarkaðslöggjöfinni
📅 03.10.2026 👁️ 3
Telur að það mætti breyta vinnumarkaðslöggjöfinni
„Sumir segja að hún hafi bara þjónað vel. Ég held að það sé hægt að breyta. Ég hef bent á það að ég vilji sjá eina löggjöf,“ segir Gylfi Dalmann Aðals...
Verkleg og bókleg ökupróf ekki lengur í boði á Hvolsvelli
📅 03.10.2026 👁️ 4
Verkleg og bókleg ökupróf ekki lengur í boði á Hvolsvelli
Ökukennari í Rangárvallasýslu furðar sig á þeirri ákvörðun Samgöngustofu og Frumherja að hætta að leyfa þeim sem eru að læra á bíl að taka ökupróf, ve...
Við­vörunar­merki fyrir ís­lenskt sam­fé­lag - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 4
Við­vörunar­merki fyrir ís­lenskt sam­fé­lag - Vísir
Greint var frá rannsókninni á Vísi en hún er unnin af alþjóðlegri hugveitu að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar og er sú fyrsta sinnar tegundar. Um ...
Sigmundur Ernir skrifar: Áráttan sú arna að hafa ekki efni á samfélagi
📅 03.10.2026 👁️ 4
Sigmundur Ernir skrifar: Áráttan sú arna að hafa ekki efni á samfélagi
Mynd Það skiptir máli hvort stjórnað er af félagshyggju eða frjá
Fundu hvor aðra í prjónaskapnum - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 4
Fundu hvor aðra í prjónaskapnum - Vísir
Nanna er rafmagnsverkfræðingur og stofnaði Knittable til að hjálpa prjónurum að vera sjálfstæðari í sköpun sinni með hjálp tækni. Thelma er fatahönnuð...
Alvarlegt umferðarslys á Austurlandi
📅 03.10.2026 👁️ 4
Alvarlegt umferðarslys á Austurlandi
Um klukkan hálf tólf í dag barst lögreglu á Austurlandi tilkynning um alvarlegt umferðarslys á Jökuldal við Háreksstaðakvísl. Þetta kemur fram í tilky...
Tvær þyrlur kallaðar út að alvarlegu slysi á Jökuldal: Átta manns í fjórum bílum
📅 03.10.2026 👁️ 4
Tvær þyrlur kallaðar út að alvarlegu slysi á Jökuldal: Átta manns í fjórum bílum
Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út að Háreksstaðakvísl á Jökuldal á Austurlandi vegna alvarlegs hópslyss. Hópslysaáætlun var virkjuð.Átt...
Tvær þyrlur kallaðar út að alvarlegu slysi á Austurlandi: Átta manns í fjórum bílum
📅 03.10.2026 👁️ 3
Tvær þyrlur kallaðar út að alvarlegu slysi á Austurlandi: Átta manns í fjórum bílum
Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út að Háreksstaðaleið á Austurlandi vegna alvarlegs hópslyss við Hárekstaðakvísl. Hópslysaáætlun var vir...
Þriggja prósenta raunvextir milli stýrivaxta og verðbólgu „náttúrlega bara galið“
📅 03.10.2026 👁️ 4
Þriggja prósenta raunvextir milli stýrivaxta og verðbólgu „náttúrlega bara galið“
Langtímaatvinnuleysi er að aukast, segir forseti ASÍ sem telur stýrivexti Seðlabankans koma niður á samfélaginu öllu. Formaður efnahags- og viðskiptan...
Bæjarstjóra hampað af Time fyrir að taka sér fæðingarorlof
📅 03.10.2026 👁️ 4
Bæjarstjóra hampað af Time fyrir að taka sér fæðingarorlof
Shoko Kawata vakti mikla athygli fyrr á árinu þegar hún tilkynnti að hún hygðist taka sér fæðingarorlof, fyrst allra bæjarstjóra í Japan. Fyrir ákvörð...
Kristrún miðlæg í starfsaftökum
📅 03.10.2026 👁️ 4
Kristrún miðlæg í starfsaftökum
Kristrún miðlæg í starfsaftökum Fréttin3. október 2026Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Starfsaftökur í stjórnarráð...
Alison Hammond returns home from hospital after rushing off This Morning
📅 03.10.2026 👁️ 4
Alison Hammond returns home from hospital after rushing off This Morning
The This Morning presenter said she believes she experienced a panic attack on Friday's show.
Truflun á stafrænum ökuskírteinum
📅 03.10.2026 👁️ 4
Truflun á stafrænum ökuskírteinum
Truflun veldur því að ekki virkar að uppfæra stafræn ökuskírteini í Ísland.is smáforritinu um þessar mundir. Stafrænu ökuskírteinin eru því ekki nothæ...
Mótmælt í meira en 50 borgum og bæjum
📅 03.10.2026 👁️ 4
Mótmælt í meira en 50 borgum og bæjum
Skipulögð mótmæli fara fram í meira en 50 borgum og bæjum á Spáni í dag. Mótmælin snúa að húsnæðismálum, ekki síst leigumarkaðnum.Mótmælin hófust efti...
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Þurfum að stækka og efla lögregluumdæmi til að takast á við 20 skipulögð fjölþjóðleg glæpagengi sem hér starfa
📅 03.10.2026 👁️ 4
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Þurfum að stækka og efla lögregluumdæmi til að takast á við 20 skipulögð fjölþjóðleg glæpagengi sem hér starfa
Það eru 20 skipulagðir glæpahópar starfandi á Íslandi, hópar sem í eru bæði Íslendingar og útlendingar og starfa í fleiri en einu landi. Mikilvægt er ...
Sagðist flýja ofbeldi íslensks eiginmanns – brottvísun staðfest
📅 03.10.2026 👁️ 4
Sagðist flýja ofbeldi íslensks eiginmanns – brottvísun staðfest
Kærunefnd útlendingamála hefur staðfest brottvísun konu frá Namibíu og tveggja ára endurkomubann. Konan sagðist hafa yfirgefið íslenskan eiginmann sin...
Notaði öxi og ætlaði sér að fremja hryðjuverk
📅 03.10.2026 👁️ 4
Notaði öxi og ætlaði sér að fremja hryðjuverk
Saksóknari í Sameinuðu arabísku furstadæmunum sem rannsakar árás flugmanns á flugstjóra FlyDubai segir að hann hafa ráðist að honum með öxi og hann ha...
Taka sig upp á ógnar­hraða og smella beltinu af - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 4
Taka sig upp á ógnar­hraða og smella beltinu af - Vísir
Ökumennirnir sýna þá ökuhraðann á mælaborðinu og sýna sjálfa sig smella öryggisbeltinu af áður en þeir deila myndefninu á samfélagsmiðlum. Orðið ökuní...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna á­reksturs - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 5
Hópslysaáætlun virkjuð vegna á­reksturs - Vísir
Hópslysaáætlun hefur verið að virkjuð á Austurlandi vegna fjögurra bíla áreksturs í Jökuldal.
Tvær þyrlur sendar og hóp­slysaáætlun virkjuð vegna al­var­legs slyss - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 4
Tvær þyrlur sendar og hóp­slysaáætlun virkjuð vegna al­var­legs slyss - Vísir
Greint er frá slysinu í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi en RÚV greindi fyrst frá. Tvær þyrlur hafa verið kallaðar út vegna slyssins. Lögregl...
Átta í bílunum fjórum: Sumir al­var­lega slasaðir - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 4
Átta í bílunum fjórum: Sumir al­var­lega slasaðir - Vísir
Greint verður frá nýjust vendingum í lifandi fréttavakt hér neðst.  Greint er frá slysinu í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi en RÚV greindi f...
Furðar sig á viðbrögðum Ásdísar við gagnrýni á umdeilt útboð - „Bæði stjórnmálamenn og því kannski eðlilegt að við stundum stjórnmál“
📅 03.10.2026 👁️ 5
Furðar sig á viðbrögðum Ásdísar við gagnrýni á umdeilt útboð - „Bæði stjórnmálamenn og því kannski eðlilegt að við stundum stjórnmál“
Jónas Már Torfason oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Kópavogs furðar sig á viðbrögðum Ásdísar Kristjánsdóttur, bæjarstjóra og oddvita Sjálfstæði...
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
📅 03.10.2026 👁️ 5
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu...
HOUSING PROTESTS TAKE TO THE STREETS IN FOUR CANARY ISLANDS
📅 03.10.2026 👁️ 4
HOUSING PROTESTS TAKE TO THE STREETS IN FOUR CANARY ISLANDS
Housing protests are taking place across four Canary Islands this weekend as campaigners demand action over rents, evictions and access to affordable ...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna umferðaslyss í Jökuldal
📅 03.10.2026 👁️ 5
Hópslysaáætlun virkjuð vegna umferðaslyss í Jökuldal
Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð vegna fjögurra bíla áreksturs í Jökuldal á Austurlandi. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi slysavarnarfélagsin...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna umferðaslyss á Jökuldal
📅 03.10.2026 👁️ 4
Hópslysaáætlun virkjuð vegna umferðaslyss á Jökuldal
Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð vegna fjögurra bíla áreksturs á Jökuldal á Austurlandi.Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi slysavarnarfélagsins...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs umferðaslyss á Jökuldal
📅 03.10.2026 👁️ 4
Hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs umferðaslyss á Jökuldal
Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð vegna fjögurra bíla áreksturs við Háreksstaðakvísl á Jökuldal á Austurlandi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs umferðarslyss á Jökuldal
📅 03.10.2026 👁️ 4
Hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs umferðarslyss á Jökuldal
Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð vegna fjögurra bíla áreksturs við Háreksstaðakvísl á Jökuldal á Austurlandi.Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á ...