Framtakssjóðurinn SÍA V, sem stýrt er af Stefni hf., hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í Sóma ehf., einu þekktasta og elsta matvælaframleiðslufyrirtæki landsins á sviði samloka og tilbúinna rétta.
Kaupin ná einnig til dótturfélagsins Þykkvabæjar ehf. og eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Þetta kemur fram í tilkynningu.
Seljendur eru þeir Arnþór Pálsson og Sigurður Ólafsson sem hafa leitt félagið í gegnum mikið vaxtar og uppbyggingarskeið á undanförnum árum. Arnþór mun láta af störfum við eigendaskiptin en Sigurður mun starfa áfram sem framkvæmdastjóri félagsins.
Stefnir lauk fjármögnun á framtakssjóðnum SÍA V á síðasta ári. Áskriftir í sjóðinn námu rúmum 15,2 milljörðum króna og eru fjárfestar hans að stærstum hluta stofnanafjárfestar. SÍA V er fimmti sjóðurinn í röð SÍA framtakssjóða sem hófu starfsemi árið 2011 og hafa frá þeim tíma leitt fjárfestingar fyrir um 50 milljarða króna. Frá upphafi hefur SÍA fjárfest í samtals 18 fyrirtækjum og hafa sex þeirra verið skráð í kauphallir hér á landi eða erlendis.
Deloitte var ráðgjafi seljenda við söluna en BBA//Fjeldco ráðgjafi kaupanda.