Viðbragðsaðilar og fjarskiptafélög hafa lagst á eitt til þess að styrkja fjarskiptakerfið á Íslandi í kringum almyrkva á sólu og Neyðarlínan hefur einnig sett upp sérstakt varanúmer.
Einnig segjum við frá nýrri úttekt Landlæknis á aðbúnaði á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum.
Að auki sláum við á þráðinn norður á Húsavík en þar eru hinir árlegu Mærudagar að hefjast.
Í sportinu verður svo fjallað um Evrópuleikina sem fram fóru í gær en bæði Stjarnan og Valur mæta með forystu í seinni leiki sína.