Kyana er gift Viktori Má Snorrasyni matreiðslumanni en þau kynntust fyrir þremur árum.
Þrátt fyrir að hafa búið hér lengi og hitt mikið af fólki segir Kyana á Instagram að það sé erfitt að eignast vini á Íslandi og í raun hvar sem er þegar maður er orðinn fullorðinn.
Hún ákvað því að senda út boðskort á allar stelpur sem hefðu áhuga á því að koma í samfélagsfjallgöngu og lofaði að taka bananabrauð með. Þetta hafi verið svolítið berskjaldandi og hún segist hafa verið smá kvíðin yfir því að enginn myndi mæta.
Hún þurfti þó ekki að örvænta því fjöldi kvenna meldaði sig í gönguna og það eina sem hún hafði áhyggjur af var að það væri ekki nógu mikið af bananabrauði fyrir allar stelpurnar. Það reyndist blessunarlega vera meira en nóg af því.
Stelpurnar komu sumar einar, aðrar í hóp og einhverjar komu saman í bíl þrátt fyrir að hafa aldrei hist áður. Fjallgangan var misauðveld fyrir þær en allar virtust þær skemmta sér vel og eignuðust nýja vini.
„Ég var næstum því farin að tárast þegar ég heyrði stelpur skiptast á símanúmerum eða að ræða flutningana til Íslands,“ skrifaði Kyana meðal annars á Instagram og var djúpt snortin yfir nýjum vináttum. Fimmtíu stelpur mættu í gönguna ásamt tveimur hundum og einu sætu litlu barni. Þær voru frá tuttugu löndum og í hópnum voru margar íslenskar.
„Ég vona að þetta samfélag haldi áfram að vaxa og gera skemmtilega hluti eins og að vera með bókaklúbb, föndurkvöld, matarboð, partí, helgarferðir og fleira. Á tímum þar sem allir eru límdir við skjáinn þarfnast fólk samveru með öðru fólki og stelpur þurfa að eiga stelpustundir,“ bætir Kyana við í textanum og hvetur allar áhugasamar stelpur til að vera með í hópnum.