Grunnskólinn á Raufarhöfn hefur verið lokaður síðan í október. Óvíst er hvenær skólahald hefst aftur í bænum. Á meðan ganga börnin í Öxarfjarðarskóla.
Raufarhöfn var einn stærsti síldarsöltunarstaður landsins á sjöunda áratugnum og þar bjuggu yfir 600 manns. Þegar vertíð stóð sem hæst fjölgaði í tvö þúsund með farandverkafólki sem þangað kom til að vinna. Síldin hvarf 1967 og íbúum hefur fækkað æ síðan.
Þegar mest var voru um 100 börn í skólanum. Á næsta ári verða þau bara tvö og búið er að taka ákvörðun um að skólinn verði ekki opinn.
Fjölskylduráð Norðurþings ákvað að loka grunnskólanum á Raufarhöfn í október 2025. Vonir stóðu til að hann yrði opnaður aftur í haust en af því verður ekki. Börnunum tveimur verður ekið í Öxarfjarðarskóla, í 63 kílómetra fjarlægð frá Raufarhöfn.
„Það sem okkur vantar hér á Raufarhöfn eru fleiri íbúar og fleiri börn, þannig þetta er ekki alveg búið,“ segir Nanna Steina Höskuldsdóttir en hún situr í skólaráði Raufarhafnar. Hún segir foreldra skilja ákvörðunina.
„Það var bara svolítið misjafnt. Flestir voru alveg sáttir sko. Við búum það vel að þrátt fyrir að vera svona norðarlega er oftast ágætis veður hérna. En auðvitað koma dagar þar sem er leiðinlegt veður og þá seinkar bílnum kannski aðeins en það gerðist ekki oft í vetur,“ segir hún.
Nanna segir að bregðast þurfi við byggðaþróun í landinu.
„Við þurfum að fá fleira fólk út á land til þess að halda uppi eðlilegri starfsemi í þessum byggðarlögum. Það eru bara forréttindi að fá að búa á stað eins og Raufarhöfn.“