Skógarbjörn réðst á fólk í Fukushima í norðurhluta Japans í dag og særði fjóra. Árásir bjarna í Japan hafa færst í aukana og í fyrra drápu dýrin 13 manns.
Fyrstu árásir bjarnarins í morgun voru á tvo starfsmenn verksmiðju sem framleiðir bílavarahluti. Eftir það réðst björninn á einn í íbúðahverfi og svo á annan í nálægri verksmiðju. Einn er alvarlega særður, aðrir minna.
Sífellt algengara hefur orðið síðustu ár að fólk sjái birni á ferli. Birnirnir hafa sést fara inn í hús, verið á ferli við skóla og í matvörubúðum. Á þessum árstíma eru birnir að vakna úr vetrardvala.