Vaktinni er lokið. Við fylgjumst með framvindu mála á næstu dögum.
Takk fyrir samfylgdina.
Landhelgisgæsla Íslands og sérsveit ríkislögreglustjóra fóru um borð í skipið Bandero, á vegum Paul Watson-samtakanna, í kvöld, handtóku skipstjórann og tóku yfir stjórn skipsins.
Bandero verður flutt til hafnar í Reykjavík. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.
Samkvæmt Landhelgisgæslunni óskaði áhöfn hvalveiðiskipsins Hvals 9 eftir aðstoð eftir að hún taldi öryggi sínu ógnað.
Landhelgisgæslan segir Bandero hafa siglt inn fyrir 12 sjómílna landhelgi Íslands og að skipstjóri þess hafi ítrekað hunsað fyrirmæli um að yfirgefa svæðið og síðar að stöðva skipið.
Þá voru varðskipið Freyja, þyrla Landhelgisgæslunnar og sérsveit ríkislögreglustjóra kölluð til.
Þegar Bandero kom til Íslands í lok júní sagði Paul Watson að markmið leiðangursins væri að stöðva hvalveiðar Hvals hf. en ekki stofna fólki í hættu. „Á hálfri öld af aðgerðum hef ég aldrei valdið slysum á fólki,“ sagði Watson í viðtali við RÚV. „Ætlun okkar er að hindra Kristján Loftsson í að drepa hvali.“
- Í lok júní tilkynnti Paul Watson að hann hygðist snúa aftur til Íslands með aðgerð sem samtökin kölluðu Operation 86. Nafnið vísar til atburðanna árið 1986 þegar hvalveiðiskip Hvals hf. voru skemmd í Reykjavíkurhöfn. Watson sagði markmiðið nú vera að stöðva hvalveiðar með friðsamlegum aðgerðum.
- Skömmu síðar kom skip samtakanna, Bandero, á Íslandsmið og hóf leit að hvalveiðiskipunum Hvali 8 og Hvali 9 á meðan Landhelgisgæslan fylgdist með ferðum skipsins.
- 10. júlí sigldi skipið frá Íslandi til Írlands til að koma slösuðum skipverja undir læknishendur. Í þeirri tilkynningu kom fram að stefnt væri að því að snúa aftur til Íslands.
- 22. júlí sneri Bandero aftur í íslenska efnahagslögsögu. Þann 28. júlí svaraði skipið ekki ítrekuðum köllum Landhelgisgæslunnar, þrátt fyrir að þeim beri skylda til þess.
- Í dag, 30. júlí, komst Bandero í nálægð við Hval 9 og reyndi að trufla för skipsins. Paul Watson-samtökin sögðu Hval 9 hafa snúið aftur til hafnar eftir árekstur við Bandero en Landhelgisgæslan hefur ekki staðfest það. Aðgerðastjóri hjá Landhelgisgæslunni segir að von sé á fréttatilkynningu.
Í myndefni sem birst hefur á Facebook-síðu Paul Watson-samtakanna og á persónulegri Facebook-síðu Paul Watson má sjá bæði skip og þyrlu Landhelgisgæslunnar. Landhelgisgæslan hefur staðfest að myndefnið sé frá aðgerðum kvöldsins.
Bandero, skip Paul Watson-samtakanna, hefur nálgast hvalveiðiskip Hvals hf. og hefur gert tilraunir til að trufla för þess. Þetta staðfestir Magnús Pálmar Jónsson, aðgerðastjóri hjá Landhelgisgæslunni.
Magnús sagðist ekki geta veitt frekari upplýsingar að svo stöddu.
Í tilkynningu Paul Watson samtakanna segir að skip þess hafi siglt utan í Hval 9 og að Landhelgisgæslan hafi sent bæði þyrlu og skip á staðinn. Þá segir í tilkynningunni að Hvalur 9 hafi í kjölfarið hætt veiðum og verið siglt í höfn. Landhelgisgæslan hefur ekki staðfest þær upplýsingar sem fram koma í tilkynningu samtakanna en Magnús Pálmar segir von á fréttatilkynningu frá Landhelgisgæslunni.
Landhelgisgæslan hefur sent viðbragð vegna þessa en ekki liggur fyrir hvers eðlis það er eða hve umfangsmikið. Paul Watson samtökin segja að Landhelgisgæslan hafi sent bæði þyrlu og skip.
Bandero hefur verið í íslenskri efnahagslögsögu í þeim yfirlýsta tilgangi að fylgjast með og stöðva hvalveiðar.