Atvikið átti sér stað á fimmtudag. Starfsmenn fjallakofa fundu drenginn og létu lögreglu vita. Þegar hún hafði leitað föðurinn uppi kom í ljós að hann var enn á göngu upp fjallið með eldri syni sínum.
Samkvæmt frétt BBC munu lögreglumenn hafa húðskammað manninn þegar hann sneri loks aftur en þá höfðu liðið átta klukkutímar síðan hann skildi son sinn eftir. Sonurinn er sagður hafa verið þreyttur og órólegur þegar hann hitti föður sinn aftur en það rigndi í hlíðum fjallsins meðan allt þetta átti sér stað.
Faðirinn mun hafa iðrast en feðgarnir þrír höfðu ætlað að ganga saman upp fjallið þegar hinn sjö ára kvartaði yfir því að vera orðinn þreyttur. Faðirinn og eldri sonurinn hafi þó viljað komast á toppinn og haldið áfram á meðan sá yngsti átti að bíða eftir þeim.