Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur myndefni undir höndum þar sem tveir einstaklingar sjást vinna skemmdarverk á tröppum Grafarvogskirkju. Málið er til rannsóknar sem hatursglæpur.
Á myndefninu sést til þeirra mála yfir regnbogafána með íslensku fánalitunum.
Í tilkynningu lögreglu segir að rannsókn málsins miði vel. Hins vegar sé ekki hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.