Mikill munur er á fylgi flokkanna í Reykjavík eftir hverfum borgarinnar.
Í Grafarvogi nýtur Sjálfstæðisflokkurinn stuðnings 47% kjósenda, Miðflokkurinn mælist með 18% og Samfylkingin 10%. Aðrir flokkar mælast varla í hverfinu.
Eftir því sem vestar dregur eykst fylgi Samfylkingarinnar og dregur úr fylgi Sjálfstæðisflokksins.
Þetta sést þegar niðurstöður lokakönnunar Gallups eru brotnar niður eftir hverfum.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærsti flokkurinn í öllum hverfum borgarinnar, ef frá eru talin póstnúmer 103 og 108 – Fossvogur og Bústaðahverfi – en þar mælist Samfylkingin með 28% en Sjálfstæðisflokkur 23%.
Í miðbæ Reykjavíkur og Vesturbænum, póstnúmerum 101, 102 og 107, fær Sjálfstæðisflokkurinn 28%, Samfylkingin 25%, Vinstrið 14%, Miðflokkur 7%, Viðreisn 9% og Sósíalistaflokkurinn 9%.
Sterkasta hverfi Flokks fólksins er Breiðholt. Þar mælist flokkurinn með 6% atkvæða. Sjálfstæðisflokkurinn fær 33%, Samfylkingin 20%, Vinstrið 8%, Miðflokkurinn 13%, Viðreisn 7% og Sósíalistaflokkurinn og Framsókn 5% hvor.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins eykst með hækkandi aldri
Fylgi Sjálfstæðisflokksins eykst með hækkandi aldri.
Í yngsta aldurshópnum, 18–29 ára, er Samfylkingin stærst með 28% en Sjálfstæðisflokkurinn næststærstur með 24%.
Í öðrum aldurshópum er Sjálfstæðisflokkurinn stærstur. Fylgið er mest í elsta aldurshópnum, 70 ára og eldri, eða 40% en þar er Samfylkingin með 22%.
Þá er áberandi munur á fylgi Sósíalistaflokksins eftir aldri. Í yngsta aldurshópnum ætla 11% að kjósa flokkinn, en í þeim elsta aðeins 1%.
Hjá flestum öðrum flokkum er ekki marktækur munur á fylgi eftir aldri.
Lítill munur á milli kynja
Tiltölulega lítill munur er á fylgi flokkanna eftir kyni. Þannig er ekki marktækur munur á fylgi Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar, Viðreisnar, Framsóknar og Pírata eftir kyni.
Hins vegar nýtur Vinstrið áberandi meiri stuðnings meðal kvenna, eða 14% samanborið við 8% hjá körlum og sama er að segja af Flokki fólksins, sem mælist með 4% stuðning meðal kvenna en aðeins 1% meðal karla.
Þessu er öfugt farið hjá Miðflokki, þar sem stuðningurinn er 13% hjá körlum en 9% hjá konum, og Sósíalistum, þar sem stuðningurinn er 6% hjá körlum en 3% hjá konum.