Sjálfstæðisflokkur stærstur í síðustu könnun fyrir kosningar
Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur í Reykjavík. Miðflokkur fengi tvo fulltrúa og gæti því ekki verið þriðja hjólið í meirihluta með Framsókn og Sjálfstæðisflokki.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærstur í nýrri könnun Maskínu sem birtist seint í gærkvöldi. Hann mælist með 31,3 prósenta fylgi.
Það er nákvæmlega sama fylgi og Gallup mældi flokkinn með í sinni könnun, sem birtist líka í gær. Flokkurinn fengi 8 fulltrúa í borgarstjórn, verði þetta niðurstöður kosninganna í dag.
Samfylking mælist næststærst hjá Maskínu, með 19,4 prósenta fylgi, Viðreisn þar á eftir með 12 prósent og Vinstrið með 11 prósent. Í sætum talið fengi Samfylking 5 fulltrúa, en Viðreisn og Vinstrið 3 hvor.
Miðflokkurinn mælist með 9,8 prósent og 2 fulltrúa og Framsókn 6,1 prósent og einn fulltrúa.
Sósíalistaflokkurinn mælist með síðasta fulltrúann í borgarstjórn, með 4,5 prósenta fylgi. Aðrir flokkar næðu ekki kjöri og myndu Flokkur fólksins og Píratar því hverfa úr borgarstjórn.