Sjálfsafgreiðsluvélar sem settar voru upp í landamæraeftirliti Keflavíkurflugvallar í október hafa enn ekki komist í gagnið. Lögreglan segir kerfið ekki hafa virkað sem skyldi þegar það hafi verið prófað.
Fréttastofu hafa borist ábendingar um langar raðir í landamæraeftirlitinu á Keflavíkurflugvelli í sumar og athygli vekur að sjálfsafgreiðsluvélar sem settar voru upp í október í fyrra eru ekki í notkun.
Bjarni Ólafur Ólafsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á Suðurnesjum, segir raðir geta myndast á álagspunktum við komur flugvéla frá Bandaríkjunum og Kanada. Þá fari evrópskir farþegar í gegnum sjálfvirk hlið en aðrir fái afgreiðslu hjá landamæravörðum.
Nýtt landamæraeftirlitskerfi, þar sem lífkenni komufarþega utan Evrópu eru skráð, var tekið í notkun í október. Samhliða voru settar upp sjálfsafgreiðsluvélar til að létta undir með landamæravörðum en þær hafa enn ekki komist í fulla notkun.
Bjarni segir innleiðingu á sjálfsafgreiðsluvélunum hafa gengið mun hægar en vonir stóðu til. Prófanir hafi farið fram en vélarnar ekki virkað almennilega og því hafi verið ákveðið að nota þær ekki yfir hásumarið. Hann segir stefnt að því að taka vélarnar hægt og rólega í notkun frá og með miðjum ágúst.