Slökkvilið reynir nú að ráða niðurlögum mikils sinuelds í brekku undir Háfelli, skammt undan Vík í Mýrdal.
Sigurður Gýmir Bjartmarsson varaslökkviliðsstjóri segir mikinn mannskap hafa verið kallaðan út og að slökkviliðið njóti liðsinnis slökkviliðsmanna frá Kirkjubæjarklaustri og björgunarsveitarmanna. Eldurinn sé ekki nálægt byggð og því ekki talið að hætta steðji að fólki eða mannvirkjum.