Sindri Snær Birgisson og Ísidór Nathansson, sakborningarnir í hryðjuverkamálinu svokallaða, voru í dag sakfelldir í Landsrétti fyrir vopnalagabrot. Sindri Snær fékk 18 mánaða fangelsisdóm og Ísidór 15 mánaða dóm. Það eru sömu dómar og þeir fengu í Landsrétti í mars 2025.
Þeir voru einnig sýknaðir af ákærum fyrir brot á hryðjuverkalögum líkt og síðast.
Sindri og Ísidór voru ekki viðstaddir dómsuppsöguna. Dómurinn hefur ekki verið birtur.
Hæstiréttur taldi verulega annmarka á dómi Landsréttar og gerði honum að taka málið fyrir aftur.
„Ég held að ákærðu megi vel við una,“ segir Einar Oddur Sigurðsson, verjandi Ísidórs, inntur eftir því hvort dómnum verði áfrýjað til Landsréttar.
„Við vonumst til þess báðir tveir að þessu máli sé lokið hér í dag,“ segir Sveinn Andri Sveinsson, verjandi Sindra. Honum sýnist dómur Landsréttar vera talsvert ítarlegri en héraðsdóms miðað við blaðsíðufjölda en hann á eftir að skoða hann betur.
„Þá gef ég mér að rökstuðningur sé meiri og betri og uppfylli þær kröfur sem Hæstiréttur gerði. Í því tilviki þá bæði finnst mér ólíklegt að ríkissaksóknari fari að sækja um áfrýjunarleyfi og enn ólíklegra að Hæstiréttur fari að gefa aftur kost á því,“ segir hann.
Sveinn Andri segir að aldrei hefði átt að ákæra Sindra og Ísidór fyrir brot á hryðjuverkalögum en lögreglan hefði bitið það í sig. „Og gat einhvern veginn aldrei brotið odd af oflæti sínu. Allt ferlið gekk út á það að réttlæta upprunalegar vanhugsaðar aðgerðir.“
Fréttin hefur verið uppfærð