Veðurfræðingurinn Sigurður Ragnarsson, Siggi Stormur, segir að langtímaspá hans fyrir Norðausturland um verslunarmannahelgina standi, það sé ótækt að sveigja veðurspám til að þóknast skipuleggjendum viðburða. Skipuleggjendur útihátíða á Norðurlandi voru óhressir með spá Sigga, greindi Vísir frá því að þeir hafi helst gagnrýnt spá Sigga sem sagði að sólin yrði helst um sunnan- og vestanvert landið.
Simmi Vill gekk á Sigga Storm: „Ertu að segja að ég hefði ekki átt að spá rigningu fyrir norðan?“