Sigurður er gagnrýninn á borgarstjórn og segir harðan vetur framundan: „Almenningur situr eftir í svaðinu og borgar brúsann“ - DV

Sigurður er gagnrýninn á borgarstjórn og segir harðan vetur framundan: „Almenningur situr eftir í svaðinu og borgar brúsann“ - DV

Sigurður er gagnrýninn á borgarstjórn og segir harðan vetur framundan: „Almenningur situr eftir í svaðinu og borgar brúsann“ - DV

„Við erum ekki að horfa fram á venjuleg pólitísk skipti, heldur kerfisbundna tilfærslu á fjármunum úr sameiginlegum sjóðum borgarinnar og beint í vasa innmúraðra vildarvina flokksins. Reikningurinn verður sendur þeim sem minnst mega sín. Foreldrar, ungar fjölskyldur, námsmenn, aldraðir og öryrkjar munu borga með skertum lífsgæðum, hærri þjónustugjöldum og hruni á grunnþjónustu á meðan verktakar og einkafyrirtæki telja hagnaðinn,“ 

segir Sigurður Sigurðsson byggingaverkfræðingur í grein sinni á Vísi um nýja borgarstjórn.

Segir Sigurður að þung og lamandi óvissa ríki í Reykjavík og við blasi nýr pólitískur veruleiki þar sem Sjálfstæðisflokkurinn, „undir forystu sem virðist hafa fullkomlega aftengst millistéttinni og hinum vinnandi manni, hefur fengið óskorað umboð til að móta framtíð höfuðborgarinnar.“ Segir Sigurður að þar sem sú hugmyndafræði, þar sem almannahagsmunir lúta alltaf í lægra haldi fyrir sérhagsmunum, fær að stjórna stærsta þjónustukerfi landsins, opnast flóðgáttir sem borgarbúar munu seint geta lokað.

Pólitískur útboðssirkus sem gengur yfir sumarið

Sigurður er stóryrður og segir að þessi „pólitíski útboðssirkus og sýndarmennska á borð við verkefnalisti.is gæti gengið smurt á glanspappírnum yfir sumarmánuðina.“ Þegar vetur komi sé engin miskunn og blekkingarnar verði tættar sundur.

„Hvernig ætla borgarbúar að halda jólin þegar skammdegið, skafrenningurinn og snjórinn bresta á af fullum þunga? Hvert fer „litla stúlkan með eldspýturnar“? Í Ráðhús Reykjavíkur.“

Harður vetur framundan með hækkandi álögum

Sigurður segir nýja meirihlutann fljótlega munu átta sig á því að hann getur ekki lækkað skatta, greitt niður skuldir og fjármagnað fimmtán punkta óskalista í einu. Telur hann að málum verði þá forgangsraðað eftir pólitísku vægi: kjarnafylgjunni og fjármagnseigendum verður tryggður sinn skerfur með skattaafsláttum á atvinnuhúsnæði, en almenningur mun mæta stórhækkuðum þjónustugjöldum.

„Við þurfum að búa okkur undir harðan vetur þar sem gjöld á leikskóla, frístundaheimili og almenningssamgöngur munu rjúka upp, á sama tíma og gæði þjónustunnar munu líklega hrynja. Þetta mun bitna af fullum þunga á þeim hópum sem síst skyldi:

1)Ungar fjölskyldur: Þær sem eiga ekki „réttu tengingarnar“ eða starfa hjá fyrirtækjum sem geta boðið upp á einkarekna daggæslu munu sitja eftir á löngum biðlistum, á meðan gjöldin fyrir þau fáu pláss sem standa til boða hækka.

2)Námsmenn og leigjendur: Þegar Samgöngusáttmálanum er frestað og innviðum almenningssamgangna fórnað, er þetta fólk dæmt til að sitja fast í umferðaröngþveiti eða borga fúlgur fjár fyrir einkabílinn. Hagkvæmu húsnæði er frestað til að rýma fyrir lúxusvillum á Geldingarnesi.

3)Aldraðir og öryrkjar: Stuðningskerfi og liðveisla munu lamast vegna skorts á stjórnun og fjármagni. Sextíu þúsund króna „frístundastyrkur“ til fátækra hljómar eins og móðgun þegar verið er að herða aðgengi að félagslegri aðstoð og fresta viðhaldi á innviðum.“

Vinnan færist til þeirra á gólfinu sem þegar standa undir ofurálagi

Sigurður vísar í að meirihlutinn í borgarstjórn hafi meðal annars lofað að fækka millistjórnendum hjá borginni, svo hægt væri að lækka skatta og auka skilvirkni á verkefnalisti.is. Segir hann að í flóknu samfélagi eins og Reykjavík, þar sem hlutfall þeirra sem þurfa á mikilli og sérhæfðri þjónustu að halda er hæst á landinu, sé þessi orðræða stórhættuleg blekking.

„Hverjir eru þessir „millistjórnendur“ sem á að fórna á altari nýfrjálshyggjunnar? Þetta eru ekki nafnlausir skrifstofubúkar í jakkafötum. Þetta eru deildarstjórar á leikskólum sem skipuleggja faglegt starf fyrir börnin okkar. Þetta eru verkefnastjórar í velferðarþjónustu sem halda utan um flókin úrræði fyrir fatlað fólk, geðsjúka og heimilislausa. Þetta eru yfirmenn frístundaheimila og félagsmiðstöðva sem tryggja öruggt umhverfi fyrir ungmenni,“ segir Sigurður sem segir vinnuna ekki hverfa þegar störfunum sé eytt:

„Hún færist einfaldlega niður á þá sem þegar standa undir ofurálagi á gólfinu. Leikskólakennarar og félagsráðgjafar neyðast til að eyða dýrmætum tíma sínum í Excel-skjöl, vaktaplanagerð og bókhald í stað þess að sinna skjólstæðingum sínum. Afleiðingin er tafarlaus fagleg lömun. Boðleiðir lengjast og kerfið hættir einfaldlega að svara. Fyrir vikið verður þjónusta við almenning í skötulíki. Þetta er ósýnilegasti en jafnframt lúmskasti niðurskurðurinn: að eyðileggja stjórnskipulagið svo enginn sé lengur til staðar til að bera ábyrgð eða taka ákvarðanir þegar neyðin steðjar að.“

Sigurður segir viðhaldskuldirnar á skólahúsnæði ekki hverfa við brottrekstur millistjórnenda.

„Þegar haustrigningarnar og frostið herða að, munu fleiri skólastofur lokast vegna leka og myglu. Börnin okkar verða flutt í gáma á meðan foreldrar reyna að fá svör frá kerfi sem svarar ekki. Þegar fyrsti alvöru snjóstormurinn skellur á og búið er að skera niður í framlínunni eða útvista snjómokstrinum til vanbúinna verktaka, mun umferðin hreinlega frjósa föst. Höfuðborgin mun breytast í eitt risastórt, kyrrstætt bíla- og vandamálasafn í myrkrinu.“

Skipulögð rányrkja á almannafé

Sigurður segir hugmyndir meirihlutans um að bjóða út sorphirðu í einstökum hverfum eða semja við vinnustaði um rekstur leikskóla aðeins fyrstu skrefin í átt að skipulagðri rányrkju á almannafé.

„Á sama tíma og grunnkerfin eru fjársvelt og stjórnunarlega höfuðlaus, eru flóðgáttir einkavæðingarinnar opnaðar upp á gátt. Í nafni „útboða“ og „hagræðingar“ á að færa verkefni sem borgin hefur rekið á kostnaðarverði yfir til einkafyrirtækja.“

Segir Sigurður að hugsa þurfi málið til enda og spyrja hvernig einkafyrirtæki hagnast á því að skúra skóla eða tæma ruslatunnur:  „Þau gera það með því að pressa laun skúringakvenna og verkamanna niður í lágmark, skerða réttindi þeirra og draga úr gæðum þjónustunnar. Fastráðnu starfsfólki borgarinnar, sem búið hefur við lágmarksöryggi, verður smám saman ýtt út, og inn koma stórþrifafyrirtæki í eigu „réttra aðila“ sem hirða mismuninn sem hreinan gróða.“

Hann segir það jafnframt ekki lausn á húsnæðisvanda ungs fólks eða tekjulágra „að henda tilbúnum, hagkvæmum áætlunum um uppbyggingu í Keldnalandi út af borðinu og kasta þess í stað fram sex nýjum framtíðarsvæðum eins og Geldinganesi og Kjalarnesi,“ því með því er verið að búa til gullnámu fyrir innmúraðar verkfræðistofur og skipulagsverktaka. „Þetta eru gífurlegir fjármunir sem munu renna í teikningar, jarðvinnu og rannsóknir á svæðum þar sem enginn mun búa næsta áratuginn.“

Sigurður segir jólin verða gleðilega fyrir þá fáu útvöldu og innmúruðu og þeirra fyrirtæki munu blómstra á nýjum samningum við borgina.

„En fyrir hinn almenna borgara verður veturinn áminning um þá lýðræðislegu hættu sem fylgir því þegar stærsti hægri flokkurinn hættir að vera ábyrgur þjóðmálaflokkur og breytist í tæki fyrir sérhagsmuni. Það pólitíska landslag sem nú er að teiknast upp mun breytast hraðar til hins verra en margir gera sér grein fyrir.

Ef borgarbúar rísa ekki upp og krefjast þess að almannahagsmunir séu settir ofar gróðahagsmunum fárra, mun Reykjavík breytast úr því að vera samfélag fyrir alla, í einkarekna vinaparadís innmúraðra, þar sem almenningur situr eftir í svaðinu og borgar brúsann.“

#borgarstjórn #gagnrýninn #harðan #segir #sigurður


Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/frettir/2026/6/8/sigurdur-er-gagnryninn-a-borgarstjorn-og-segir-hardan-vetur-framundan-almenningur-situr-eftir-i-svadinu-og-borgar-brusann/

📰 Aðrar fréttir

Blendnar til­finningar að fara á vinnu­markað á ný - Vísir
📅 08.06.2026 👁️ 0
Blendnar til­finningar að fara á vinnu­markað á ný - Vísir
Guðmundur, sem starfaði áður sem rafveituvirki, segir blendnar tilfinningar fylgja því að fara aftur á vinnumarkað, fimm árum eftir handaágræðsluna. „...
Magnús Árni afhjúpar líflátshótun – Hannes Hólmsteinn: „Þú ert eins og prinsessan á bauninni“ - DV
📅 08.06.2026 👁️ 0
Magnús Árni afhjúpar líflátshótun – Hannes Hólmsteinn: „Þú ert eins og prinsessan á bauninni“ - DV
Magnús Árni Skjöld Magnússon, prófessor við Háskólann á Bifröst og formaður Evrópuhreyfingarinnar, segir að líflátshótanir muni ekki draga kjarkinn úr...
Aldurstakmark á rafhlaupahjól „sett af ástæðu“ en ekki virt að fullu
📅 08.06.2026 👁️ 0
Aldurstakmark á rafhlaupahjól „sett af ástæðu“ en ekki virt að fullu
Lögreglan biður foreldra um að kynna sér vel reglur um rafmagnshlaupahjól. Þau eru algengur ferðamáti barna; jafnvel þeirra sem ekki hafa náð tilskild...
„Beinin af Jónasi skipta and­skotans engu máli“ - Vísir
📅 08.06.2026 👁️ 0
„Beinin af Jónasi skipta and­skotans engu máli“ - Vísir
„Ég sat í átta ár í Þingvallanefnd ásamt Össuri Skarphéðinssyni og Birni Bjarnasyni. Þingvöll varðar okkur öll, þetta er helgasti staður þjóðarinnar; ...
Mjótt á munum í forsetakosningum og óljóst hvor hafði betur
📅 08.06.2026 👁️ 0
Mjótt á munum í forsetakosningum og óljóst hvor hafði betur
Svo mjótt var á munum í forsetakosningum í Perú í gær að yfirvöld hafa ekkert getað sagt um það enn hvor það var sem hafði betur, Keiko Fujimori eða R...
Taka rafmagnið af Snæfellsnesi og Borgarfirði í tvo tíma
📅 08.06.2026 👁️ 0
Taka rafmagnið af Snæfellsnesi og Borgarfirði í tvo tíma
Rafmagnslaust verður á öllu Snæfellsnesi og í Borgarfirði í tvær klukkustundir aðfaranótt fimmtudags. Starfsmenn Landsnets ráðast þá í viðhald á tengi...
Mikilvægt að gefa öndunum ekki brauð svo mávar éti ekki unga
📅 08.06.2026 👁️ 0
Mikilvægt að gefa öndunum ekki brauð svo mávar éti ekki unga
Varptíminn við Tjörnina er í hámarki þessa dagana og fyrstu ungarnir að koma úr eggjunum. Því er mikilvægt að hætta brauðgjöf við Tjörnina. Þetta kemu...
Báðir segjast hættir, í bili - Vísir
📅 08.06.2026 👁️ 0
Báðir segjast hættir, í bili - Vísir
Íranir lýstu því yfir í morgun að þeir myndu hætta árásum á Ísrael en ef gerðar yrðu frekari árásir á Íran eða gegn Hezbollah í Líbanon myndu Íranir h...
Séra Guðni yfirgefur Ísland
📅 08.06.2026 👁️ 0
Séra Guðni yfirgefur Ísland
Séra Guðni yfirgefur Ísland Séra Guðni Már Harðarson Mynd: Þjóðkirkjan Séra Guðni Már Harðarson hefur verið skipaður prestur íslenska safnaðarins í Da...
Fimm sprengjur úr nýjum heimildarþáttum um ásakanirnar gegn Michael Jackson - DV
📅 08.06.2026 👁️ 0
Fimm sprengjur úr nýjum heimildarþáttum um ásakanirnar gegn Michael Jackson - DV
Ein eftirminnilegustu réttarhöld 21. aldarinnar áttu sér stað árið 2005 en þar svaraði tónlistarmaðurinn Michael Jackson til saka vegna ásakana um bar...
Diver in critical condition after being hit by boat in Tenerife
📅 08.06.2026 👁️ 0
Diver in critical condition after being hit by boat in Tenerife
A 30-year-old diver is in a critical condition after being hit by a recreational boat in the marina at Radazul, in the municipality of El Rosario, Ten...
Verð­launuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn ó­reiðu - Vísir
📅 08.06.2026 👁️ 0
Verð­launuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn ó­reiðu - Vísir
Landsþing Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar, fór fram yfir tvo daga um helgina. Sverrir Páll Einarsson, laganemi, var endurkjörin formaður Uppr...
Lýsir eftir Ford Mustang bifreið sinni sem var stolið úr læstum bílakjallara
📅 08.06.2026 👁️ 1
Lýsir eftir Ford Mustang bifreið sinni sem var stolið úr læstum bílakjallara
Lára Clausen birti færslu á Facebook þar sem hún segir tvo menn hafa verið á ferðinni þegar bifreið hennar var stolið. Bíllinn er hvítur Ford Mustang ...
Idris Elba: 'Don't try to make James Bond woke'
📅 08.06.2026 👁️ 0
Idris Elba: 'Don't try to make James Bond woke'
British actor Sir Idris Elba has said that James Bond shouldn't become "woke" and that some audiences would not accept a black male playing 007.Sir Id...
Eldur í timburhakkara í Sorpu í Álfsnesi
📅 08.06.2026 👁️ 1
Eldur í timburhakkara í Sorpu í Álfsnesi
Eldur kviknaði í timburhakkara í Sorpu í Álfsnesi fyrir skemmstu. Þetta staðfestir Gunnar Dofri Ólafsson, upplýsingafulltrúi Sorpu. Hann segir eldinn ...
Eldur í timburhakkara í Sorpu á Álfsnesi
📅 08.06.2026 👁️ 0
Eldur í timburhakkara í Sorpu á Álfsnesi
Eldur kviknaði í timburhakkara í Sorpu á Álfsnesi fyrir skemmstu. Gunnar Dofri Ólafsson, upplýsingafulltrúi Sorpu segir eldinn utandyra og engum hleyp...
Fræst á Bíldudalsvegi
📅 08.06.2026 👁️ 1
Fræst á Bíldudalsvegi
Vegagerðin er að hefja fræsingar á Bíldudalsvegi. Þar er yfirborð orðið afar slæmt og verður tekið af, samkvæmt tilkynningu. Á morgun opnar Vegagerðin...
Leit að arf­taka Höllu Berg­þóru hafin: „Kemur í ljós“ - Vísir
📅 08.06.2026 👁️ 1
Leit að arf­taka Höllu Berg­þóru hafin: „Kemur í ljós“ - Vísir
Halla Bergþóra, sem sinnt hefur embættinu undanfarin ár, tók við embætti ríkislögreglustjóra þann 20. apríl og var staða hennar auglýst í kjölfarið. Í...
Eldur í vinnu­vél á Álfs­nesi - Vísir
📅 08.06.2026 👁️ 1
Eldur í vinnu­vél á Álfs­nesi - Vísir
Grétar Stefánsson aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að eldurinn hafi komið upp í vinnuvél á Álfsnessvæðinu.  Hann getur ekki s...
Gefur lítið fyrir áhyggjur fyrrum sendiherra
📅 08.06.2026 👁️ 1
Gefur lítið fyrir áhyggjur fyrrum sendiherra
„Ég vil bara undirstrika það að Evrópusambandsaðild myndi hafa engin áhrif, engu breyta um þann samning sem er í gildi milli Bandaríkjanna og Íslands,...
Drógu rafbyssur 30 sinnum úr slíðrum
📅 08.06.2026 👁️ 1
Drógu rafbyssur 30 sinnum úr slíðrum
Lögreglumenn drógu rafbyssur úr slíðri 30 sinnum á fyrsta ársfjórðungi og beittu þeim fimm sinnum. Frá þessu segir í tilkynningu frá ríkislögreglustjó...
Vildi vita hvort varnar­samningi við Banda­ríkin yrði teflt í tví­sýnu með ESB-viðræðum - Vísir
📅 08.06.2026 👁️ 1
Vildi vita hvort varnar­samningi við Banda­ríkin yrði teflt í tví­sýnu með ESB-viðræðum - Vísir
Stefán Vagn Stefánsson þingflokksformaður Framsóknar vísaði í grein Gunnars Pálssonar, fyrrverandi sendiherra, í óundirbúnum fyrirspurnartíma í dag þe...
Enn í lífs­hættu­legu á­standi - Vísir
📅 08.06.2026 👁️ 2
Enn í lífs­hættu­legu á­standi - Vísir
Staðan er að hans sögn enn alvarleg. Greint var frá því fyrir rúmri viku að maðurinn hefði þurft að fá barkaþræðingu til að geta andað. Hann er með lu...
Nottingham attacks inquiry revealed miscarriage of justice, victim's mother says
📅 08.06.2026 👁️ 1
Nottingham attacks inquiry revealed miscarriage of justice, victim's mother says
A public inquiry into the Nottingham attacks revealed a "catastrophic collapse of responsibility" and an "undoubted miscarriage of justice", the mothe...
Lýsingar á ó­fremdar­á­standi við Konukot komi á ó­vart - Vísir
📅 08.06.2026 👁️ 1
Lýsingar á ó­fremdar­á­standi við Konukot komi á ó­vart - Vísir
Fullyrt er í umfjöllun DV sem birt var um helgina að fyrirtækjaeigendur í Ármúla í Reykjavík lýsi því sem kallað er ófremdarástand í götunni vegna skj...
Páll Óskar söng Eitt af blómunum með börnum í Laugarnesskóla
📅 08.06.2026 👁️ 1
Páll Óskar söng Eitt af blómunum með börnum í Laugarnesskóla
Páll Óskar mætti í morgunsöng í Laugarnesskóla í Reykjavík í morgun. Þar söng hann lag sitt og Benna Hemm Hemm Eitt af blómunum. Öll börnin í skólanum...
Bylgjulestin: Sólskinsstemning í Grinda­vík - Vísir
📅 08.06.2026 👁️ 1
Bylgjulestin: Sólskinsstemning í Grinda­vík - Vísir
Bylgjan bauð upp á skemmtilegan sumarvarning í Lukkuhjólinu og þá voru gjafabréf frá N1 í boði, frískandi 7up Pink drykkir, Kitkat og áskrift að Sýn+....
Bylgjulestin: Sól­skin og stemning í Grinda­vík - Vísir
📅 08.06.2026 👁️ 1
Bylgjulestin: Sól­skin og stemning í Grinda­vík - Vísir
Bylgjan bauð upp á skemmtilegan sumarvarning í Lukkuhjólinu og þá voru gjafabréf frá N1 í boði, frískandi 7up Pink drykkir, Kitkat og áskrift að Sýn+....
Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða - Vísir
📅 08.06.2026 👁️ 1
Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða - Vísir
Var svart fólk dregið til dauða í nafni vísindanna? Prófessorarnir Hulda Eiríksdóttir og Eiríkur Bergmann rekja í nýjasta þætti Skuggavaldsins sögu Tu...
Vill breyta lögum um nafnbreytingar afbrotamanna
📅 08.06.2026 👁️ 1
Vill breyta lögum um nafnbreytingar afbrotamanna
Sigurður Helgi Pálmason, þingmaður Flokks fólksins, lagði fram frumvarp um breytingu á lögum um mannanöfn á laugardag. Fimmtán þingmenn, bæði úr minni...
ESB á Al­þingi, Konukot og sáttur Bubbi - Vísir
📅 08.06.2026 👁️ 1
ESB á Al­þingi, Konukot og sáttur Bubbi - Vísir
Einnig fjöllum við um málefni Konukots sem nú er staðsett í Ármúla. Lögregla var kölluð til vegna atviks þar í síðustu viku. Við ræðum við sviðsstjóra...
„Eyðum þessum Downsara fyrir hádegi – Berjumst fyrir tilverurétti allra eftir hádegi“
📅 08.06.2026 👁️ 1
„Eyðum þessum Downsara fyrir hádegi – Berjumst fyrir tilverurétti allra eftir hádegi“
Ef þér finnst fyrirsögnin skelfileg, gott, þá getum við byrjað að ræða saman. Ég hef ekki séð mikla umfjöllun um málið á íslenskum miðlum en samfélags...
Jeremy Bowen: 'The Middle East is in turmoil'
📅 08.06.2026 👁️ 1
Jeremy Bowen: 'The Middle East is in turmoil'
The BBC's international editor, Jeremy Bowen, said the public are "right to be worried" as the consequences of the war will be felt for generations.
Guðni hefur ekki áhyggjur af svalli og brennivínsbrjálæði æsku sinnar: „Það er ekki heil brú í þeim varnaðarorðum“ - DV
📅 08.06.2026 👁️ 1
Guðni hefur ekki áhyggjur af svalli og brennivínsbrjálæði æsku sinnar: „Það er ekki heil brú í þeim varnaðarorðum“ - DV
Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra, segir ekki heila brú í varnaðarorðum um að fyrirhugaðir tónleikar Kaleo á Þingvöllum muni rjúfa helgi staðarins...
Philippines: 32 dead after earthquake off Mindanao coast
📅 08.06.2026 👁️ 1
Philippines: 32 dead after earthquake off Mindanao coast
At least 32 people have died after a magnitude-7.8 earthquake struck off the coast of Mindanao island in the southern Philippines, officials say.The q...
Sam­komu­lag um landaheitið Ís­land undir­ritað - Vísir
📅 08.06.2026 👁️ 1
Sam­komu­lag um landaheitið Ís­land undir­ritað - Vísir
Þetta segir í fréttatilkynningu frá Íslandsstofu.  Samkomulagið hefur verið undirritað af fulltrúum utanríkisráðuneytisins, menningar-, nýsköpunar- og...
„Grund­vallar­at­riði í rekstri að fólk komist til og frá“ - Vísir
📅 08.06.2026 👁️ 1
„Grund­vallar­at­riði í rekstri að fólk komist til og frá“ - Vísir
Innviðaráðuneytið tilkynnti í síðustu viku að ferjan Baldur myndi taka við siglingum milli lands og Eyja frá og með deginum í dag, á meðan unnið væri ...
Apple and Google given three months to ban nude images on children's devices
📅 08.06.2026 👁️ 1
Apple and Google given three months to ban nude images on children's devices
Tech companies such as Apple and Google have been asked by the UK government to block access to naked images on smartphones and other devices for unde...
Heimurinn hrundi
📅 08.06.2026 👁️ 1
Heimurinn hrundi
Heimurinn hrundi Helena Huld Haf­steins­dótt­ir hún missti vin­konu sína þeg­ar hún var fjór­tán ára. Henni fannst sem ver­öld­in hefði stöðv­ast og á...
Nottingham attacks inquiry revealed miscarriage of justice, stab victim's mother says
📅 08.06.2026 👁️ 1
Nottingham attacks inquiry revealed miscarriage of justice, stab victim's mother says
A public inquiry into the Nottingham attacks revealed a "catastrophic collapse of responsibility" and an "undoubted miscarriage of justice", the mothe...
„Ég passaði mig sér­stak­lega á því að tala ekki um Evrópu­sam­bandið“ - Vísir
📅 08.06.2026 👁️ 1
„Ég passaði mig sér­stak­lega á því að tala ekki um Evrópu­sam­bandið“ - Vísir
Eitthvað skoluðust heimildir til og á Vísi, í frétt um tónleikaröð Bubba í Laugardalshöll, var fullyrt að Bubbi hefði sagt eitthvað á þá leið, þegar E...
Strunsaði úr við­tali: „Þú ert annað­hvort spillt eða heimsk“ - Vísir
📅 08.06.2026 👁️ 1
Strunsaði úr við­tali: „Þú ert annað­hvort spillt eða heimsk“ - Vísir
Viðtalið var tekið í Wisconsin á föstudaginn af Kristen Welker og fyrir Meet the press-þátt NBC. Trump var þá á leið á viðburð með bændum í ríkinu en ...
Vilja koma í veg fyrir aðra Iceland-deilu
📅 08.06.2026 👁️ 1
Vilja koma í veg fyrir aðra Iceland-deilu
Íslensk stjórnvöld ætla í samvinnu við samtök og stofnanir á vettvangi útflutnings að vakta hvernig heitið Ísland eða Iceland er notað erlendis. Meðal...
Sveinn Andri og Vigdís gift - DV
📅 08.06.2026 👁️ 2
Sveinn Andri og Vigdís gift - DV
Barnaníðingur
Bretar setja ofan í við Vance vegna undir­róðurs - Vísir
📅 08.06.2026 👁️ 1
Bretar setja ofan í við Vance vegna undir­róðurs - Vísir
Vance tengdi dráp á Henry Nowak, átján ára gömlum hvítum háskólanema, í Southampton við meinta „fjöldainnrás innflytjenda“ og sagði að Bretar ættu að ...
Instagram vikunnar: „Ég er að hugsa!“ - DV
📅 08.06.2026 👁️ 1
Instagram vikunnar: „Ég er að hugsa!“ - DV
Vikan á Instagram er fastur liður á DV.is þar sem við skoðum hvaða myndir slógu í gegn á Instagram síðustu daga. Þetta er fólkið sem við erum að fylgj...
Halda minningartónleika um Björgvin - „Maður sviðs og söngva“ - DV
📅 08.06.2026 👁️ 1
Halda minningartónleika um Björgvin - „Maður sviðs og söngva“ - DV
Minningartónleikar um söngvarann ástsæla; Björgvin Halldórsson, verða haldnir í Eldborg laugardaginn 28. nóvember. Þar munu börn hans, Svala og Krummi...
Vig­dís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapp­helduna - Vísir
📅 08.06.2026 👁️ 2
Vig­dís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapp­helduna - Vísir
Barnaníðingur
Bergþór lenti á vegg: „Þetta voru 2-3 vikur af algjöru helvíti“ - DV
📅 08.06.2026 👁️ 1
Bergþór lenti á vegg: „Þetta voru 2-3 vikur af algjöru helvíti“ - DV
Bergþór Másson, frumkvöðull, segir það bæði sína helstu blessun og bölvun að vilja stöðugt bæta sig á öllum sviðum. Hann eigi ekkert val þegar kemur a...
Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir - Vísir
📅 08.06.2026 👁️ 1
Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir - Vísir
Hjónin birtu mynd af sér frá athöfninni á Instagram. Helgi var í flottum brúnum jakkafötum en Pétur í hefðbundnari svörtum jakkafötum. Athöfnin var lí...