Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason kom af stað fjörugum skoðanaskiptum á Facebook um helgina þegar hann varpaði fram þeirri kenningu að fjöldi fána í samfélagi segði sitt um hversu gott samfélagið væri.„Þumalputtaregla mín er svona: Þeim mun færri fánar, þeim mun betra samfélag. Eða: Þeim mun fleiri fánar, þeim mun verra samfélag,“ skrifaði Egill og bætti við að þetta ætti eiginlega við um alla fána.
Egill setti fram umdeilda kenningu sem fór öfugt ofan í marga – „Meira bullið í þér“