Tónlistarmaðurinn og laxveiðimaðurinn Bubbi Morthens vandar þeim ekki kveðjurnar sem nota dróna til að hafa uppi á laxi í veiðiám.Bubbi vakti máls á þessu á Facebook um helgina og sagði slíkar aðferðir eiga lítið skylt við fluguveiði.„Að leita laxa með dróna, staðsetja síðan fiskinn, leggjast á hann er ekki fallegt. Slíkt gera aðeins ruddar og hefur ekkert með fluguveiði að gera,“ skrifaði Bubbi.
Bubbi segir suma veiðimenn ganga allt of langt – „Slíkt gera aðeins ruddar“