Æði margir afturhaldsseggirnir eru með böggum hildar að afloknu heimsmeistaramótinu í knattspyrnu út af fjölda þeldökkra fótboltasnillinga sem léku listir sínar með liðum á borð við Belga, Englendinga, Frakka, Hollendinga, Portúgala og Spánverja, sem raunar eru allar saman gamlar heimsvaldaþjóðir sem níddust á nýlendum sínum í Afríku fram eftir síðustu öld, og er skelfilegur skammarblettur á sögu þeirra.Það stakk í auga þjóðernisöfgamanna að sjá breytta heimsmynd á vellinum, og að þar væri komið ríkulegt og sjálfsagt pláss fyrir fleiri en fölhvíta manninn.
Sigmundur Ernir skrifar: Þjóðernisöfgahyggja er ákall um afturför