Formaður Miðflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, segir niðurstöðu meirihlutaviðræðna í Reykjavík sýna að Sjálfstæðisflokkurinn hafi hafnað tækifæri til stefnubreytingar í borginni. Í færslu á Facebook óskar hann meðal annars Kaffihúsi Vesturbæjar til hamingju með það sem hann kallar sigur þeirra afla sem studdu myndun nýs meirihluta.
Segir Sjálfstæðisflokkinn hafa hafnað stefnubreytingu
Sigmundur Davíð bendir á að Miðflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn hafi bætt við sig fylgi í borgarstjórnarkosningunum. Að hans mati hefði verið eðlilegt að flokkarnir tveir ynnu saman að nýjum meirihluta.
Þess í stað ákvað Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins að mynda meirihluta með Viðreisn og Framsóknarflokknum.
Í færslunni segir Sigmundur Davíð að með þeirri ákvörðun hafi sjálfstæðismenn hafnað tækifæri til að breyta um stefnu í höfuðborginni og koma í veg fyrir að Reykjavík festist enn frekar í sessi sem „Rauða Reykjavík“.
Hann heldur því jafnframt fram að vinstrisinnuð stjórnmálaöfl nýti sér oft stuðning „nytsamra sakleysingja“ til að ná völdum og innleiða stefnumál sem ekki hafi verið kynnt með skýrum hætti fyrir kosningar.
Tengir meirihlutann við ESB-málið
Sigmundur Davíð telur einnig að Viðreisn hafi náð mikilvægum pólitískum markmiðum á sama tíma og meirihlutinn í Reykjavík var myndaður.
Hann vísar þar til ákvörðunar Sjálfstæðisflokksins um að hætta andstöðu við þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu vegna aðildarviðræðna við Evrópusambandið.
Líkt og Nútíminn greindi frá um síðustu helgi fóru fram viðræður á bak við tjöldin um bæði borgarmálin og framgang ESB-málsins á Alþingi. Sigmundur Davíð lítur svo á að Viðreisn hafi með þessu fengið bæði aðild að nýjum meirihluta í Reykjavík og auknar líkur á að þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið fari fram 29. ágúst.
Heimildir Nútímans herma hins vegar að samkomulag um lok umræðu á Alþingi hafi verið gert án beinna tengsla við meirihlutamyndunina í Reykjavík.
Samkvæmt þeim heimildum taldi þingflokkur Sjálfstæðisflokksins að frekara málþóf myndi ekki skila tilætluðum árangri og gæti jafnvel reynst flokknum pólitískt kostnaðarsamt í ljósi reynslunnar af umræðum um veiðigjöld á síðasta kjörtímabili.
Miðflokkurinn var ekki aðili að samkomulaginu og hélt umræðum áfram.
Kaffihús Vesturbæjar meðal „sigurvegara“
Í Facebook-færslunni nefnir Sigmundur Davíð nokkra aðila sem hann telur hafa komið sérstaklega vel út úr niðurstöðunni.
Þar á meðal eru Kaffihús Vesturbæjar, sem hann notar sem táknmynd fyrir ákveðinn hóp álitsgjafa og áhrifafólks í Reykjavík, auk Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur formanns Viðreisnar.
Einnig nefnir hann Friðjón Friðjónsson almannatengil, Dag B. Eggertsson þingmann Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóra, sem og Gísla Martein Baldursson sjónvarpsmann, sem er meðal eigenda Kaffihúss Vesturbæjar.
Hannes Hólmsteinn vekur athygli á fögnuði stuðningsmanna Viðreisnar
Stjórnmálafræðingurinn Hannes Hólmsteinn Gissurarson tekur undir hluta af greiningu Sigmundar Davíðs í eigin Facebook-færslu.
Hann segist hafa tekið eftir því að ýmsir fyrrverandi sjálfstæðismenn og stuðningsmenn Viðreisnar hafi fagnað sérstaklega myndun hins nýja meirihluta.
Hannes nefnir meðal annars Benedikt Jóhannesson, stofnanda Viðreisnar, lögmanninn Svein Andra Sveinsson og Ólaf Stephensen, fyrrverandi formann Evrópusinna.
„Þessum mönnum hefur fram að þessu ekki legið gott orð til Sjálfstæðisflokksins. Vilja þeir flokknum vel? Ekki hefur mér fundist það, en Guð láti gott á vita,“ skrifar Hannes.