Kynferðisbrotamaðurinn Sigurður Ingi Þórðarson, sem einnig er þekktur undir nafninu Siggi hakkari, hefur verið dæmdur í átján mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir ógrynni brota, mestmegnis skjalafals og fjársvik sem hlaupa samtals á tugum milljóna króna, en einnig vopnalagabrot.
Heildarfjárhæðin var hátt í þrjátíu milljónir króna sem Sigurður sveik út úr tugum fyrirtækja, en hann játar brot sín skýlaust, að því er fram kemur í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur.
Dómurinn er alls 23 blaðsíður að lengd, og þar af fara sautján blaðsíður í að telja upp brot Sigurðar sem framin voru á árunum 2019-2021.
Blekkti starfsfólk til að heimila viðskiptin
Brotin framdi Sigurður flest með þeim hætti að hann pantaði vörur undir dulnefni í gegnum tölvupóst og í nafni félaga eða fyrirtækja sem voru í rauninni ekki með virka starfsemi, og kom sér síðan undan því að greiða fyrir þær.
Sigurður hringdi gjarnan á undan sér og kynnti sig sem framkvæmdastjóra eða starfsmann hinna uppskálduðu fyrirtækja til þess að auka traustverðugleika sinn og blekkja starfsfólk viðkomandi fyrirtækis til þess að heimila reikningsviðskipti með gjaldfresti.
Hann fékk vörurnar ýmist afhentar til sín eða til annarra fyrir sína hönd, en ekki er kveðið nánar á um refsingu vitorðsmanna hans í dómnum. Mest sveik Sigurður vörur fyrir samtals 2.294.177 krónur frá einu fyrirtæki.
Meðferð málsins dregist óhóflega
Einhverjum kann að þykja refsingin væg, í ljósi fyrri brota Sigurðar og umfangs svikanna, en þrátt fyrir að umfang dómsins sé mikið er það mat dómsins að meðferð málsins hafi dregist óhóflega og ekkert hefur komið fram sem bendir til þess að Sigurði verði sérstaklega um það kennt.
Með hliðsjón af því og brotum hans þykir refsingin hæfilega ákveðin í átján mánuði, en í ljósi þess hve meðferð málsins tafðist verður refsingin skilorðsbundin.
Dýr merkjafatnaður og áfengi gert upptækt
Sigurði er gert að endurgreiða flestum fyrirtækjanna alls 6,9 milljónir fyrir það sem hann sveik af þeim, en bótakröfum þriggja fyrirtækja var vísað frá þar sem frá þeim bárust hvorki tilkynningar um lögmæt forföll né var ákæruvaldinu falið að sækja þing fyrir þeirra hönd. Þá var honum gert að greiða 4,2 milljónir í sakarkostnað.
Þá var Sigurði gert að sæta upptöku á þremur hnífum í kassa, fimm Rolex-úrum, fjöldanum öllum af raftækjum og dýrum vínflöskum, merkjavörufatnaði frá merkjum á borð við Ralph Lauren, Prada og Louis Vuitton sem fundust á heimili hans.
Vaktaður fyrir síbrot
Sigurður hefur áður hlotið þunga dóma fyrir fjársvik, en hann var árið 2014 dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir fjölda afbrota, þó aðallega fjársvika.
Játaði hann þá að hafa svikið út um þrjátíu milljónir, en hann var dæmdur til að greiða samtökunum Wikileaks rúmar sjö milljónir sem hann sveik frá samtökunum. Hafði Sigurður stuttu áður fengið átta mánaða dóm fyrir kynferðisbrot gegn 17 ára pilti.
Árið 2015 var hann svo dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir brot gegn níu drengjum, meðal annars gegn einum piltanna alls 40 sinnum á tveggja ára tímabili. Sagði í niðurstöðu dómsins að brot Sigurðar hafi verið umfangsmikil og brotavilji hans einbeittur.