Sigfríð Ingólfsdóttir er fallin frá

Mynd: Shutterstock
Sigfríð Ingólfsdóttir, fyrrverandi fiskverkakona á Akureyri, er látin 73 ára að aldri. Hún varð bráðkvödd á heimili sínu síðustu helgi.
Akureyri.net greindi frá andláti hennar.
Sigfríð fæddist á Akureyri 7. júní 1952 og var landsþekkt fyrir einstakan stuðning sinn við enska knattspyrnufélagið Arsenal og var heimili hennar gjarnan kallað Arsenal-húsið. Hún var einnig mikill stuðningsmaður KA.
Foreldrar hennar voru Unnur Kristjana Sigtryggsdóttir og Ingólfur Árni Guðmundsson. Eftir hana lifa fjögur börn.