Mikil nýliðun verður í nýrri borgarstjórn, sextán fulltrúar kveðja og nýir koma inn í staðinn. Kynjaskipting borgarstjórnar er jöfn – 12 karlar og 11 konur. Yngsti borgarfulltrúinn er nýorðinn 26 ára en sá elsti er 65 ára.
Tveir flokkar þurrkuðust út úr borgarstjórn, Píratar og Flokkur fólksins.
„Ég er stolt af því sem ég hef áorkað á síðustu átta árunum og vona að það hafi verið borginni og borgarbúum til framdráttar. Mér líður eins og við höfum náð miklum árangri. Þetta er erfitt. Það er bara þannig,“ segir Alexandra Briem, fráfarandi borgarfulltrúi.
Sigrún Ásta Einarsdóttir, sem var níunda á lista Sjálfstæðisflokksins, kemur ný inn í borgarstjórn. Hún segist alla tíð hafa haft trú á því að flokkurinn næði inn níu fulltrúum. „Ég hlakka til að takast á við verkefni sem framundan eru að breyta borginni. Strax,“ segir hún.