„Rannsóknin sendir skýr viðvörunarmerki um að alltof mörg ungmenni séu háð orkudrykkjum til að komast í gegnum daglegt líf,” segir Karen Ellemann framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar.Samkvæmt niðurstöðum nýrrar norrænnar skýrslu neytir fimmtungur ungmenna á Norðurlöndum orkudrykkja að minnsta kosti einu sinni á dag og þrír af hverjum fimm að minnsta kosti einu sinni í viku. Nær helmingur segist stundum ekki komast í gegnum daginn án orkudrykkjar.
Sex af hverjum tíu ungmennum drekka orkudrykk í hverri viku