Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Pétur Þ. Óskarsson framkvæmdastjóri Íslandsstofu undirrituðu í dag fjármögnunarsamning fyrir markaðssetningu á Íslandi sem áfangastað erlendis.
Fram kemur í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins að stjórnvöld muni því leggja til 630 milljónir króna í verkefnið sem er liður í nýrri aðgerðaáætlun atvinnustefnu Íslands og er markmiðið að auka mjög neytendamarkaðssetningu á Íslandi sem áfangastað.
„Ferðaþjónustan hefur lengi kallað eftir því að farið sé í viðvarandi markaðssetningu á Íslandi sem áfangastað í stað þess að vera í tímabundnum markaðsátökum. Þessi samningur er fyrsta skrefið á þeirri vegferð,“ er haft eftir Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra í tilkynningunni.
„Þetta styður auðvitað við þá öflugu markaðssetningu sem ferðaþjónustufyrirtækin sjálf standa fyrir. Markmiðið með viðvarandi markaðssetningu er ekki síst að draga úr árstíðasveiflum í íslenskri ferðaþjónustu og stuðla að betri dreifingu ferðamanna um landið,“ segir hún enn fremur.
Skipti miklu máli fyrir íslenskt hagkerfi
Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, segir útflutningstekjur af ferðaþjónustu skipta miklu máli fyrir íslenskt hagkerfi og því sé afar jákvætt að stjórnvöld hafi ákveðið að fjármagna verkefnið.
„Samkeppnin um ferðamenn hefur sjaldan verið meiri en í dag.“
„Við viljum hafa áhrif á þróun greinarinnar, sækja fram gagnvart réttum markhópum á okkar verðmætustu mörkuðum og vinna gegn árstíðasveiflu. Þannig náum við að hámarka þann ávinning sem íslenskt samfélag í heild hefur af þessari mikilvægu atvinnugrein,“ er haft eftir Pétri Þ. Óskarssyni í tilkynningu stjórnarráðsins.