Helena Rós Sturludóttir, upplýsingafulltrúi Ríkislögreglustjóra, staðfestir að sérsveitin hafi verið kölluð út að beiðni Lögreglunnar á Norðurlandi eystra.
Varðstjóri hjá Lögreglunni á Akureyri staðfestir við Vísi að lögregluaðgerð standi yfir en kvaðst ekki getað tjáð sig um málið frekar.
Samkvæmt umfjöllun mbl.is, sem greindi fyrst frá, var ungur maður handtekinn og leiddur inn í lögreglubíl í aðgerð við Strandgötu á Akureyri.
Veistu meira? Þú getur sent okkur fréttaskot hér. Fullum trúnaði heitið.
Veistu meira? Þú getur sent okkur fréttaskot hér. Fullum trúnaði heitið.