Um helmingur af íslenskum útflutningi fer til landa Evrópusambandsins. Það er lægra hlutfall en ætla mætti ef litið væri á tölur Hagstofunnar. Höfundar nýrrar skýrslu segjast hafa greint raunverulegar viðskiptaþjóðir Íslands, en ekki aðeins útflutningsleiðir.
Skýrsla Rannsóknarmiðstöðvar um samfélags- og efnahagsmál, RSE, var unnin af Arnari Arinbjarnarsyni og Róberti Bragasyni hjá Samtökum skattgreiðenda.
Þar yfirfóru þeir gögn frá innlendum og erlendum hagstofum og gagnabönkum til að fá gleggri mynd af utanríkisverslun Íslands.
„Hollandsbjögun“
Róbert segir umræðu um viðskiptin oft ónákvæma sem hafi stundum leitt til misskilnings um hverjir kaupi íslenskar vörur. Tölur Hagstofunnar endurspegli oftar en ekki útflutningsleiðir fremur en raunverulegar viðskiptaþjóðir Íslands.
Svokallaðrar Hollandsbjögunar gæti í hagtölum en Holland er skráð fyrir um þriðjungi alls vöruútflutnings árið 2025.
Raunverulegir stærstu markaðir íslenskra vara eru Bandaríkin, Þýskaland, Bretland og Pólland samkvæmt niðurstöðum skýrslunnar. Hlutur ESB-ríkja í heildarútflutningi Íslands sé um helmingur – ekki 70% eins og tölur Hagstofunnar gefi til kynna.
„Sem skýrist af því að þegar vara fer frá Íslandi þá fer hún yfirleitt fyrst til Rotterdam og svo eitthvað annað. Þá í Hagstofugögnum þá er hún raunverulega skráð sem útflutningur til Hollands þó að hún sé ekki útflutningur til Hollands,“ segir Róbert.
Bandaríkjadollari fyrirferðarmeiri í viðskiptum
Þá hafi einnig verið skoðað hvaða gjaldmiðlar séu helst notaðir í utanríkisviðskiptum Íslands.
„Það leiðir í ljós að Bandaríkjadollari er miklu fyrirferðarmeiri í viðskiptum við Ísland heldur en almennt er talað um,“ segir Róbert.
Samkvæmt skýrslunni ber dollarinn um 60% vöruútflutnings öll árin 2015–2024 en evran innan við 30%. Evran vegi þyngra í innflutningi, um 41% á móti 38% í dollurum. Íslenska krónan sé lítið sem ekkert notuð í utanríkisviðskiptum.
Skýrslan leiddi einnig í ljós að útflutningur þjónustu er stærri en vöruflutningur. Séu þjónustuviðskipti talin með eru Bandaríkin stærsta einstaka viðskiptaland Íslands.
Ferðaþjónusta sé stærsta útflutningsgrein landsins og Bandaríkin langstærsti þjónustumarkaðurinn, eða um 32%. Það sé á pari við öll 27 ríki Evrópusambandsins samanlagt sem séu um 37,5%.