Í yfirlýsingunni segja samtökin að með lögunum heimili stjórnvöld frelsissviptingu sem hefur ekki gerst sekt um refsiverða háttsemi. Samtökin segja frelsissviptingu eitt alvarlegasta inngrip sem ríkið getur beitt einstaklingi.
Deildin hefur sérstakar áhyggjur af því að lögin geri ráð fyrir frelsissviptingu barna. Þau telja lögin ekki samrýmast skuldbindingum Íslands til Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Samtökin telja að lögin feli í sér hættu á fjölþættum og alvarlegum mannréttindabrotum og hvatti stjórnvöld til þess að falla frá frumvarpinu og móta þess í stað annars konar úrræði í nóvember 2025.