Aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ segir stýrivaxtahækkun veruleg vonbrigði. Flókið verði að vinna úr því ef verðbólga mælist umfram forsenduákvæði kjarasamninga. Stjórnvöld og hið opinbera hafi ekki staðið nógu þétt að baki markmiðum kjarasamninga.
Alþýðusamband Íslands, ASÍ, sendi frá sér yfirlýsingu í dag. Þar kemur fram að vaxtahækkunin sé röng og illa tímasett. Henný Hinz er aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ. Hún segir ákvörðunina geta haft ýmsar afleiðingar í för með sér.
„Það voru auðvitað veruleg vonbrigði á þessum tímapunkti að fá þriðju stýrivaxtahækkun ársins inn í þá stöðu sem auðvitað blasir við okkur á vinnumarkaði,“ segir Henný.
Engin launung að vextir og verðbólga bíti á heimili og fyrirtæki
Henný segir útlit fyrir það að verðbólga verði umfram forsenduákvæði kjarasamninga þegar Hagstofa Íslands birtir verðbólgutölur í næstu viku. Það sé flókin staða að vinna úr.
„Það er engin launung að háir vextir og verðbólga eru auðvitað farin að bíta verulega á bæði heimili og fyrirtæki í landinu,“ segir Henný.
„Við þessar aðstæður höfum við í verkalýðshreyfingunni alltaf sérstakar áhyggjur af tekjulægstu hópunum. Við vitum það að svona staða bítur alltaf verst á þá hópa, á skuldsett heimili, leigjendur og heimili með þungan framfærslukostnað. Við sjáum að það er farið að birtast okkur. “
Gagnrýna viðbrögð stjórnvalda og hins opinbera
Undanfarið ár hefur ASÍ ítrekað gagnrýnt það að stjórnvöld og hið opinbera hafi ekki staðið þéttara að baki sameiginlegum markmiðum sem sett voru við undirritun kjarasamninga, segir Henný.
Þau hafi meðal annars snúið að því að ná tökum á efnahagsmálum, auka stöðugleika og að lækka vexti og verðbólgu.
„Við erum enn að fá fréttir, til dæmis í gær af hækkun hjá Reykjavíkurborg, og í sumar fengum við fréttir af hækkunum á gjaldtöku í heilbrigðisþjónustunni,“ segir Henný.
„Þetta hefur auðvitað áhrif á verðbólguna. Þetta sendir líka mjög vond skilaboð út í hagkerfið í þessari stöðu og þetta höfum við verið mjög gagnrýnin á.“