Um hundrað rússneskir hermenn eru sagðir hafa fallið eða særst í loftárás úkraínskra sérsveitarmanna SBU á höfuðstöðvar rússnesku leyniþjónustunnar FSB í Kherson-héraði í Úkraínu, sem er að hluta til hernumið af Rússum. Volodomyr Zelensky Úkraínuforseti greindi frá árásinni í færslu á samfélagsmiðlinum Telegram í gær en greindi þó ekki frá því hvenær árásin átti sér stað.
Mikil átök hafa verið milli Rússa og Úkraínumanna í Kherson-héraði og samnefndri höfuðborg héraðsins, allt frá upphafi innrásarinnar í febrúar 2022. Rússar réðu stórum hluta héraðsins fyrst um sinn en Úkraínuher náði aftur borginni í nóvember sama ár.
Fram kemur í frétt Kyiv Independent að úkraínski herinn hafi einnig gert drónaárásir á byggingu FSB á Krímskaga í byrjun mánaðarins.