„Hugmyndin um hótel við Keflavíkurflugvöll hefur verið hluti af framtíðarsýn fyrir svæðið frá því að þróunaráætlun Keflavíkurflugvallar til ársins 2040 var gefin út 2015,“ segir Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia.
Hann segir áformin hafa verið unnin í víðtæku samráði við nærsamfélagið. „Það er að segja sveitarfélögin, flugvallarsamfélagið og aðra hagaðila.“
Sagði Isavia gera öðrum hótelum við flugvöllinn erfitt fyrir
Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, sagði á dögunum að hann vildi að Isavia yki samstarf við atvinnulíf í nærumhverfi Keflavíkurflugvallar áður en fyrirtækið réðist í að byggja hótel inni á flugvallarsvæðinu.
„Það er mjög erfitt fyrir hótelin að nálgast gestina í flugstöðinni. Nú ætlar Isavia að gera þeim enn erfiðara fyrir með því að byggja hótelið á bílastæðunum sem eru af skornum skammti og fara í samkeppni við þá atvinnustarfsemi sem er nú þegar,“ sagði Vilhjálmur.
Hyggjast ekki byggja né reka hótelið sjálf
Guðjón segir hagsmuni Keflavíkurflugvallar og nærsamfélagsins samofna og Isavia leggi áfram áherslu á vandað samstarf.
Hann bendir enn fremur á að áformin séu hluti af gildandi deiluskipulagi sem samþykkt var fyrir um átta árum.
Að hans sögn er Isavia að framkvæma fýsileikamat á verkefninu. Mögulegt næsta skref sé útboð sem sé reglum samkvæmt opið öllum á Evrópska efnahagssvæðinu.
„Isavia hyggst hvorki byggja né reka hótelið sjálft. Félagið hefur hins vegar verið að kanna áhuga markaðarins á uppbyggingu og rekstri hótels á vegum þriðja aðila á þessari lóð við flugvöllinn og viðtökur hafa verið jákvæðar,“ segir Guðjón.