Framkvæmdastjóri körfuknattleikssambands Evrópu, FIBA Europe, segir að Íslendingar ættu að vera sérstaklega stoltir af þeim árangri sem íslenska karlalandsliðið í körfubolta hafi náð.
Þetta kemur fram á Facebook-síðu Körfuknattleikssambands Íslands.
Framkvæmdastjórinn heitir Kamil Novak og er fyrrverandi landsliðsmaður Tékkóslóvakíu og síðar Tékklands í körfubolta. Hann ávarpaði þing FIBA Europe sem fór fram á Grand hótel í Reykjavík á dögunum:
„Ég þekki ekki hvernig Íslendingar líta sjálfir á þessi afrek en þetta er afar tilkomumikið. Og það eru engar ýkjur þegar við erum að tala um þjóð með um 400 þúsund íbúa sem er bara eins og meðal borg í Evrópu. Ísland hefur ekki bara komist einu sinni á Eurobasket [lokakeppni EM] heldur þrívegis í síðustu fjögur skipti. Við skulum ekki gleyma því hversu mikil samkeppnin er því raunhæft er að segja að tíu lið geti unnið EM og auðvelt er að benda á að sama þjóðin vinnur ekki EM tvö skipti í röð. Að komast þangað þrjú skipti af fjórum er magnað og nokkuð sem íslensku stuðningsmennirnir og íslensku félögin ættu að vera sérlega stolt af,“ er haft efir Novak.
HM spenningur
Litlu munaði að Ísland kæmist í lokakeppni síðasta heimsmeistaramóts en eftir naumt tap gegn Georgíu náðist það ekki. Nowak segist hafa horft spenntur á leikinn:
„Meðan á leiknum stóð fékk ég ýmis skilaboð sem tengdust leiknum og til að mynda frá öðrum heimsálfum. Skilaboðin voru stundum á þann veg að menn sögðust vita að Ísland væri með körfuboltalandslið en hefði aldrei grunað að Ísland gæti komist í lokakeppni HM. Ég staðfesti það og benti mönnum á að fyrri leikur þessara þjóða hafi verið mjög jafn og allt gæti gerst. En ég varð sem sagt var við hversu mikla athygli það vakti að Ísland væri í lokaumferð undankeppninnar að berjast um sæti á HM. Það hafðist ekki hjá Íslendingum og Svartfjallaland er því fámennasta þjóðin sem hefur komist á HM. En Svartfjallaland er helmingi fjölmennara en Ísland. Við vorum því einni körfu frá því að enn fámennari þjóð kæmist á HM þegar síðasta skotið fór ekki ofan í hjá Íslandi gegn Georgíu. Ég tel því að framgangur Íslendinga sé mjög sérstakur.“
Nowak minnist í færslunni Ólafs Rafnssonar heitins með hlýhug en Ólafur var forseti FIBA Europe þegar Nowak var ráðinn til starfa þar árið 2012 en Ólafur lést árið eftir. Nowak segir samstarf þeirra Ólafs hafa verið gott:
„Ólafur er mér ofarlega í huga nú þegar ég er staddur á Íslandi vegna þess að okkur gekk mjög vel að vinna saman. Þegar ég kom til starfa var klofningur í körfuboltafjölskyldunni í Evrópu og staðan var óneitanlega erfið því einnig var ágreiningur við Alþjóða körfuboltasambandið. Pólitíska andrúmsloftið var því mjög erfitt og krefjandi.“