Donald Trump Bandaríkjaforseti vill reka Spán úr Atlantshafsbandalaginu, endurskoða afstöðu Bandaríkjanna til þess að Falklandseyjar séu breskt yfirráðasvæði og fleira í þeim dúr, samkvæmt heimildum Reuters-fréttaveitunnar.
Minnisblað þessa efnis liggur fyrir og hefur Reuters séð það. Ástæða þessa er óánægja Trumps með að NATO-ríkin hafi ekki hlýtt kalli hans og tekið þátt í stríðsrekstri Bandaríkjanna í Íran.
Spánn bannaði meðal annars að herstöðvar þar í landi yrðu notaðar og heimilaði ekki yfirflug bandarískra hervéla. Pedro Sanchez, forsætisráðherra Spánar, kveðst áhyggjulaus og áréttar að Spánn sé traustur og tryggur meðlimur NATÓ.
Reuters segir minnisblaðið ekki víkja á neinn hátt að fækkun í liðsafla Bandaríkjanna í Evrópu og sérfræðingar segja herstöðvar í álfunni nauðsynlegar Bandaríkjunum. Þess utan er ekkert í regluverki NATO sem gerir einu ríki kleift að krefjast þess að öðru ríki verði vísað úr bandalaginu. Næsti leiðtogafundur NATO verður haldinn í Tyrklandi 7. og 8. júlí.
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sakað mörg ríkja NATÓ um sviksemi; Frakkar, Spánverjar og Ítalir bönnuðu umferð herflugvéla um lofthelgi sína og leyfðu þeim ekki að lenda á herflugvöllum. Bretar hótuðu hinu sama en gáfu loks eftir. NATÓ-ríki féllust ekki heldur á kröfur hans um að senda herskip að Hormússundi.
Sanchez segir tilætlunarsemi Trumps hafa valdið núningi innan bandalagsins sem forsetinn hefur kallað meinlausan pappírstígur. Spánarstjórn væri ætíð reiðubúin til fulltingis við samherja en alltaf innan ramma alþjóðalaga. Næsti leiðtogafundur NATÓ verður haldinn í Tyrklandi 7. og 8. júlí.