Hásetar og bátsmenn á þremur skipum Eimskips, sem verið hafa í verkfalli frá því á mánudaginn, hafa náð samkomulagi við skipafélagið og er verkfalli þeirra því aflýst.
Eimskip greinir frá þessu í tilkynningu.
Verkfallið náði til þriggja skipa Eimskips, Brúarfoss, Dettifoss og Selfoss.
Öll skip á áætlun í næstu viku
Segir í tilkynningunni að undirbúningur fyrir brottfarir skipanna hefjist þegar í stað og gert sé ráð fyrir að öll skip félagsins verði komin á áætlun strax í næstu viku.
Bergur Þorkelsson, formaður Sjómannafélags Íslands, sem samdi við Eimskip fyrir hönd skipverjanna, sagði í samtali við mbl.is fyrr í vikunni að deilan snéri ekki að launaliðnum heldur væri að mestu deilt um mönnun á skipunum.
„Eimskip hefur mikla trú á sjómannastéttinni og hefur langvarandi reynslu af starfi þeirra, hæfni, dugnaði og áræðni. Það er félaginu mikilvægt að halda því rótgróna sambandi áfram, vinna að framgangi stéttarinnar og lyfta henni upp,“ segir í tilkynningu Eimskips.