Flugmaðurinn og áhafnarmeðlimur hans voru skotnir niður með loftvarnarkerfi yfir Íran í upphafi aprílmánaðar. Þá fór af stað umfangsmikil björgunaraðgerð.
Flugmanninum var bjargað fljótt en vopnakerfasérfræðingur flugvélarinnar fannst ekki strax. Hann lenti langt frá flugmanninum og tók nokkra daga að koma honum til bjargar, þar sem bæði Bandaríkjamenn og Íranir kepptust um að finna hann fyrstir.
Sjá einnig: Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð
Rúmum mánuði áður hafði sami flugmaður verið skotinn niður yfir Kúveit, samkvæmt bandarískum blaðamanni.
Þá skaut kúveiskur flugmaður þrjár bandarískar F-15E herþotur niður á mjög skömmum tíma. Svo virðist sem hann hafi gert það fyrir mistök. Sex flugmenn og vopnakerfasérfræðingar sluppu án alvarlegra meiðsla.
probably "friendly fire" on 🇺🇸F-15 pic.twitter.com/n5CvKsp78Z
— C4H10FO2P ☠️ (@markito0171) March 2, 2026
CBS hefur einnig heimildir fyrir því að um sama flugmanninn sé að ræða.
Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur vísað fyrirspurnum fjölmiðla vestanhafs til yfirstjórnar herafla Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum en fyrirspurnum þangað hefur ekki verið svarað.
Í samtali við CBS sagði fyrrverandi herforingi í flugher Bandaríkjanna að hann vissi ekki til þess að sami flugmaðurinn hefði tvisvar sinnum verið skotinn niður í sömu átökunum í langan tíma. Það hefði líklega síðast gerst í stríðinu í Víetnam.
„Þetta er eins og að verða tvisvar sinnum fyrir eldingu.“