Samfylkingarfólk gagnrýnir flokkinn fyrir brottfararstöð
Fyrrverandi ritari Samfylkingarinnar, fyrrverandi aðstoðarmaður forsætisráðherra og fyrrverandi borgarfulltrúi flokksins eru meðal þeirra sem harma ný lög um brottfararstöð fyrir umsækendur um alþjóðlega vernd.
„Eru þið í alvöru stolt af þessu?“ spyr Ingibjörg Stefánsdóttir, sem hefur setið í flokksstjórn Samfylkingarinnar, um afstöðu flokksins til brottfararstöðvar sem samþykkt var á Alþingi í gær.
Fjöldi áhrifafólks úr röðum Samfylkingarinnar undanfarin ár tekur í sama streng á samfélagsmiðlum eftir að málið, sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur stóð fyrir, náði í gegn.
Samfylkingin birti færslu á Facebook-síðu sinni í gær þegar lögin um brottfararstöð voru samþykkt. Voru taldar upp þær aðgerðir sem ríkisstjórnin hefur staðið fyrir „til að vinna að breiðri sátt í samfélaginu um útlendingamál“ undir yfirskriftinni: „Við styrkjum Ísland með ábyrgð í útlendingamálum“.
„Skammarblettur á Samfylkingunni!“ skrifar Hrannar Björn Arnarsson sem var aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur, þá formanns Samfylkingarinnar, þegar hún var forsætisráðherra.
„Það skapar ekki „breiða sátt í samfélaginu um útlendingamál“ að innleiða stefnu Miðflokksins í útlendingamálum,“ skrifar Óskar Steinn Ómarsson, fyrrverandi ritari Samfylkingarinnar.